Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Fjölmargar vörslur Bernharðs komu ekki í veg fyrir tap í dag
13. desember 2015 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Tap gegn Fram eftir hörkuleik
Akureyri-1 tók á móti sterku liði Fram í lokaleik 2. flokks fyrir jólafrí. Strákarnir hafa verið óstöðugir í vetur en þeir hafa sýnt góðan leik á köflum en dottið niður þess á milli.
Gestirnir byrjuðu leikinn mikið mun betur og ekki leið á löngu uns staðan var orðin 2-6 og Ingimundur tók leikhlé. Strákarnir komust betur og betur í takt við leikinn og náðu að jafna metin í 9-9. Framarar héldu áfram að leiða leikinn en Akureyri var aldrei langt á eftir og var staðan 13-14 þegar flautað var til hálfleiks.
Áfram var leikurinn í járnum í upphafi síðari hálfleiks en þegar 18 mínútur lifðu leiks komust strákarnir yfir í 18-17 og fengu tækifæri til að tvöfalda forystuna en þá hrökk allt í baklás. Gestirnir gengu á lagið og kláruðu leikinn með öguðum leik en þeir refsuðu vel fyrir öll mistök okkar manna og skoruðu ófá mörk úr hröðum sóknum.
Lokatölur voru 24-30 en strákarnir geta sjálfum sér um kennt að hafa ekki fengið neitt útúr leiknum. Bernharð Jónsson átti mjög góðan leik í markinu og var mikilvægur þáttur í því að strákarnir komu sér aftur inn í leikinn eftir erfiða byrjun.
Arnþór Finnsson var öflugur á línunni og skoraði 8 mörk, Hafþór Vignisson, Heimir Pálsson og Vignir Jóhannsson Rist skoruðu allir 4 mörk á meðan Patrekur Stefánsson skoraði 2 og þeir Sigþór Jónsson og Daði Jónsson skoruðu 1 mark hver.
Nú tekur við smá pása hjá liðinu og vonandi að menn læri af leiknum í dag og nái að fínpússa spilið betur, ef menn ná að fækka mistökunum þá getur liðið farið ansi langt í vetur.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson