Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Menn fögnuðu innilega enda vannst gríðarlega mikilvægur sigur
11. febrúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri knúði fram stigin mikilvægu
Akureyri og ÍR mættust í kvöld í 20. umferð Olís deildar karla. Fyrir leikinn munaði 5 stigum á liðunum og gátu Breiðhyltingar með sigri dregið okkar lið niður í fallbaráttuna. Úr varð hörkuleikur þar sem hart var barist allt til enda.
Gestirnir byrjuðu betur og skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins. Ekki leið þó á löngu uns heimamenn komust á blað og upp frá því var jafnt á nánast öllum tölum í fyrri hálfleik. Þegar flautað var til hlés var staðan jöfn 9-9 og ljóst að sama spenna yrði við völd í síðari hálfleiknum.
Sóknarleikur liðanna var ekki upp á marga fiska og var greinilegt að hvorugt liðið vildi tapa þessum leik. Svavar Már fór mikinn í marki gestanna í hálfleiknum en hann varði 10 skot sem gerir rúmlega 50% vörslu. Tomas Olason stóð í marki Akureyrar og varði 4 skot.
Góð byrjun okkar manna í síðari hálfleiknum kom liðinu í góða stöðu en þegar um kortér lifði leiks var staðan 18-15 fyrir Akureyri og útlitið gott. Þessi munur hélst næstu mínútur og stefndi í nokkuð þægilegar lokamínútur.
En þá fengu Ingimundur og Róbert brottvísun með stuttu millibili sem Breiðhyltingar nýttu sér vel og jöfnuðu í 20-20 og áhorfendur á nálum. Liðin skiptust svo á að skora og spennan í algleymingi.
Þegar lokamínútan rann upp leiddi Akureyri 22-21 og var með boltann í höndunum. Ekki tókst að nýta þá sókn og gestirnir tóku leikhlé þegar enn voru 14 sekúndur til leiksloka. Á endanum fengu þeir fínt hornafæri en Tomas Olason varði sitt 13 skot í leiknum og tryggði þar með stigin mikilvægu.
Ekki endilega besti leikur Akureyrarliðsins í vetur en gríðarlega mikilvæg stig í hús og nú hefur liðið skilið ÍR-inga vel fyrir aftan sig þegar 7 leikir eru eftir af deildinni og hefur þar að auki betur í innbyrðisviðureignum liðanna. Reyndar breyttist ekkert í baráttunni fyrir miðri deild þar sem öll liðin unnu og eru því áfram tvö stig í 4. sætið mikilvæga og raunar einnig í 3. sætið.
Næsti leikur er þó álíka mikilvægur en það er útileikur gegn FH en Hafnfirðingar eru sæti ofar en ÍR og vilja sömuleiðis skilja sig frá fallsætinu og koma sér í miðbaráttuna. Það verður því hart barist í Kaplakrikanum á föstudaginn næsta, sjáumst þar!
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson