Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Patrekur var markahæstur hjá Akureyri 1 í dag
21. febrúar 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Sigur og tap gegn Val í dag
Eftir að laugardagsleik Akureyrar-2 og Víkinga hafði verið frestað vegna ófærðar var lengi spurningamerki hvort leikirnir tveir gegn Val yrðu í dag. En Valsmenn komust norður þannig að bæði lið 1 og 2 spiluðu.
Fyrri leikur dagsins var viðureign Akureyri-1 og Vals-1 í fyrstu deildinni. Valsmenn, sem sitja á toppi deildarinnar byrjuðu mun betur og náðu strax góðu forskoti. Staðan í hálfleik var 9-14 Val í vil. Þessi fimm marka munur á liðunum hélst megnið af seinni hálfleiknum en undir lokin saxaði Akureyri á forskotið en leiknum lauk með þriggja marka sigri Vals 23-26.
Valsmenn geta þakkað stórbrotinni markvörslu Ingvars Ingvarssyni sigurinn en hann varði fjölmörg dauðafæri í leiknum.
Mörk Akureyrar:
Patrekur Stefánsson 7, Birkir Guðlaugsson, Hafþór Vignisson og Róbert Sigurðsson 3 mörk hver, Almar Bjarnason, Kristinn Ingólfsson og Vignir Jóhannsson 2 mörk hver og Arnþór Finnsson 1 mark.
Bernharð Jónsson stóð í markinu allan tímann og stóð sig vel.
Strax á eftir mættust Akureyri-2 og Valur-2 í annarri deildinni. Sá leikur þróaðist með öðrum hætti, eftir jafnræði framan af tók Akureyri frumkvæðið og leiddi með tveim mörkum í hálfleik, 12–10. Forysta Akureyrarliðsins jókst jafnt og þétt í seinni hálfleiknum og aldrei spurning um hvoru megin sigurinn lenti. Þegar upp var staðið munaði sjö mörkum og flottur sigur, 28–21 staðreynd.
Mörk Akureyrar:
Heimir Pálsson 6, Arnþór Finnsson og Daði Jónsson 5 mörk hvor, Vignir Jóhannsson 4, Aron Gunnlaugsson 3, Jóhann Einarsson 2, Einar Jónsson, Elvar Reykjalín og Kristján Garðarsson 1 mark hver.
Arnar Fylkisson stóð í markinu allan tímann og átti frábæran leik.
Arnar Fylkisson átti sannkallaðan stórleik í markinu hjá Akureyri 2
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson