Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór Logi stóð uppúr í liði Akureyrar sem oft hefur leikið betur1. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarSkipsbrot gegn Frömurum sem lönduðu 7. sætinu Akureyri mætti í Safamýrina í gær þar sem liðið mætti Fram í hreinum úrslitaleik um 7. sætið í deildinni. Fyrirfram var búist við hörkuleik enda ljóst að liðið sem tapaði myndi þurfa að mæta Haukum í úrslitakeppninni sem hefst 14. apríl. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og náðu strax góðu taki á leiknum. Þegar kortér var liðið af leiknum var munurinn orðinn fimm mörk, 8-3, en þá kviknaði betur á leik Akureyrar og var munurinn tvö mörk þegar flautað var til hlés, 11-9. Hreiðar varði vel í markinu og vörnin var góð en sóknarleikurinn var ekki nógu beittur. Ef ekki hefði verið fyrir frábæra frammistöðu Halldórs Loga á línunni þá hefði leikurinn í raun verið búinn í hálfleiknum. Menn gerðu sér vonir um að Akureyri myndi halda áfram sömu siglingunni þegar síðari hálfleikur hófst en Framarar lokuðu vörn sinni betur og refsuðu fyrir flest mistök. Munurinn á liðunum fór mest upp í átta mörk sem var svo einmitt munurinn á liðunum þegar leiknum lauk, 25-17. Leikurinn í raun mikil vonbrigði, það voru ágætir kaflar inn á milli í leiknum en verst fannst manni þó að sá karakter og barátta sem einkennir jafnan Akureyrarliðið hvarf þegar mest á reyndi í síðari hálfleik.Mörk Akureyrar: Halldór Logi Árnason 6, Kristján Orri Jóhannsson 3 (1 víti), Sigþór Árni Heimisson 3, Andri Snær Stefánsson 1, Bergvin Þór Gíslason 1, Brynjar Hólm Grétarsson 1, Friðrik Svavarsson 1 og Hörður Másson 1. Í markinu varði Hreiðar Levý Guðmundsson 13 skot og Tomas Olason sem kom inná í lokin varði 4 skot.Mörk Fram: Óðinn Þór Ríkharðsson 8 (1 úr víti), Garðar B. Sigurjónsson 6 (2 úr vítum), Þorgrímur Smári Ólafsson 5, Stefán Darri Þórsson 3, Arnar Snær Magnússon 1, Arnar Freyr Ársælsson 1 og Sigurður Örn Þorsteinsson 1 mark. Í marki Fram varði Kristófer Fannar Guðmundsson 12 skot. Það er því ljóst að Akureyri fær það erfiða verkefni að mæta nýkrýndum Deildarmeisturum Hauka í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar og er fyrsti leikur liðanna á Ásvöllum þann 14. apríl næstkomandi. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook