Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Góður árangur hjá Sigþóri og félögum um helgina4. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Góð ferð suður um helgina Bæði liðin í 2. flokki voru á Stór-Reykjavíkursvæðinu um helgina þar sem þau léku síðustu deildarleikina á þessu tímabili. Í Annarri deildinni lék Akureyri-2 á laugardaginn við Val-2 sem fyrir leikinn sat í öðru sæti deildarinnar, tveim stigum á undan okkar strákum. Akureyrarliðið leiddi með þrem mörkum í hálfleik, 7 – 10 og bætti um betur í seinni hálfleiknum og uppskáru átta marka sigur, 21 – 29. Þar með var ljóst að liðið hafði tryggt sér 2. sætið í deildinni þar sem þeir höfðu innbyrðis vinninginn á Val. Það var því ekkert stress á strákunum í sunnudagsleiknum þegar þeir mættu KR. Í hálfleik hafði Akureyri-2 fimm marka forystu, 12 – 17 og sami munur varð í leikslok 24 – 29. Fjögur stig í hús og strákarnir í 2. sæti deildarinnar. Í fyrstu deildinni mætti Akureyri-1 í Garðabæinn á laugardag gegn Stjörnunni. Fyrirfram hefði maður reiknað með sigri Akureyrar sem leiddi með einu marki í hálfleik 11 – 12 en Stjörnumenn bitu frá sér í seinni hálfleiknum og unnu að lokum fjögurra marka sigur 25 – 21. Það var því ljóst að Akureyri-1 þurfti sigur gegn FH/ÍH í sunnudagsleiknum til að ná 6. sæti deildarinnar. Fyrir leikinn var FH/ÍH í fjórða sætinu og hafði þar að auki unnið Akureyri-1 með sjö mörkum hér fyrir norðan fyrr í vetur. En Akureyrarliðið mætti af krafti til leiks og leiddi með fjórum mörkum í hálfleik, 12 – 16 og kláraði leikinn með stæl, sjö marka sigur 24 – 31 og sjötta sætið þar með gulltryggt. Akureyri-1 er því komið í úrslitakeppnina og mætir væntanlega annaðhvort Haukum eða FH/ÍH, en einum leik er ólokið í deildinni ÍBV - FH/ÍH. Sömuleiðis tryggir 2. sætið í 2. deildinni að Akureyri-2 fer í umspil við Aftureldingu (7. sæti í 1.deild) um það hvort liðið fær sæti í átta liða úrslitunum. Það lið sem sigrar þar mun síðan mæta Fram. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook