Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Arnþór og félagar glíma við Haukana í úrslitakeppninnni15. apríl 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur: Akureyri og Haukar í 8-liða úrslitunum Það er ekki bara meistaraflokkur Akureyrar sem er að kljást við Hauka í úrslitakeppninni því sama staða er uppi hjá strákunum í 2. flokki. Samkvæmt leikjaplani eiga strákarnir að fara suður á sunnudaginn og mæta Haukum í Schenkerhöllinni klukkan 16:00. Aðeins er um einn leik að ræða þannig að sigurvegarinn í leiknum fer í fjögurra liða úrslitin. Liðin mættust tvisvar í deildarkeppninni í vetur, fyrri leikinn var Akureyri1 sannfærandi 30-24 en dæmið snerist við í seinni leiknum þar sem Haukar unnu með sama mun 27-21. Það er því líklegt að þarna munu mætast stálin stinn og ómögulegt að spá fyrir um úrslitin. Ef meistaraflokki Akureyrar tekst ætlunarverk sitt á laugardaginn, að knýja fram oddaleik gegn Haukum þá er reyndar mjög líklegt að þessum leik 2. flokks verði frestað um einhverja daga. En það skýrist á laugardaginn. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook