Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Akureyri Handboltafélag 10 ára í dag - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Merki félagsins hefur breyst þó nokkuð á þessum áratug







2. ágúst 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri Handboltafélag 10 ára í dag

Þann 2. ágúst árið 2006 varð Akureyri Handboltafélag endanlega að veruleika þegar aðalstjórn KA kláraði sinn hluta en aðalstjórn Þórs hafði áður klárað sitt. Í dag er því 10 ára afmæli félagsins og af því tilefni ætlum við að fara aðeins yfir nokkra hluti.


Ein af fyrstu æfingum félagsins var mynduð í bak og fyrir (smelltu til að sjá myndir)


Fyrsta kynningarkvöld Akureyrar heppnaðist afar vel (smelltu til að sjá myndir)


Stuttu eftir sameininguna var ráðist í að gera stuðningsmannalag fyrir Akureyri. Björn Þórarinsson úr hljómsveitinni Mánum var fenginn til að sjá um verkið en ásamt því að semja lag og texta sá hann um alla helstu hljóðvinnslu lagsins. Hinn norðlenski söngvari Eyþór Ingi Gunnlaugsson var fenginn til að syngja lagið í hljóðveri.

Nokkrir leikmenn Akureyrarliðsins voru fengnir til að syngja bakraddir en það voru þeir Andri Snær Stefánsson, Guðmundur Freyr Hermannsson, Magnús Stefánsson, Sveinbjörn Pétursson og Þorvaldur Þorvaldsson.


2. flokkur vann fyrsta titil í sögu félagsins árið 2009 þegar liðið varð Deildarmeistari (smelltu til að sjá myndir)


Heimir Örn Árnason lyftir Deildarmeistaratitlinum árið 2011 (smelltu til að sjá myndir)


Akureyri hefur oft hlotið viðurkenningu fyrir bestu umgjörðina. 2011-2012 fékk félagið allar þrjár viðurkenningarnar sem veittar voru fyrir umgjörð

2. flokkur Akureyrar varð Íslandsmeistari árið 2012 (smelltu til að sjá myndir)


Það koma margir einstaklingar að heimaleikjum félagsins (smelltu til að sjá myndir)

Þess má geta að frá stofnun Akureyrar hefur heimasíða félagsins haldið utan um tölfræði leikmanna og ávallt valið mann leiksins. Hér má sjá nokkra skemmtilega punkta:


Andri Snær Stefánsson er leikjahæsti leikmaður Akureyrar með 194 leiki fyrir félagið. En hann hefur tekið þátt í öllum nema einni leiktíð félagsins.


Sveinbjörn Pétursson hefur oftast verið valinn maður leiksins hjá Akureyri eða 30 sinnum. Einnig hefur hann varið flest skot hjá félaginu sem og vítaköst.


Bjarni Fritzson er markahæsti leikmaður Akureyrar með 709 mörk. Einnig á hann met yfir flest mörk á einu tímabili en hann gerði 247 mörk tímabilið 2010-2011.


Hörður Fannar Sigþórsson hefur fiskað flest víti í sögu Akureyrar eða 157 stykki. Einnig hefur hann fengið 7 rauð spjöld sem er met. Hörður varð einnig fyrstur til að ná 100 leikjum fyrir Akureyri.

Smelltu hér til að skoða fleiri tölfræðipunkta um Akureyri Handboltafélag.

Strax frá stofnun félagsins hefur heimasíðan boðið upp á beina textalýsingu frá miklum meirihluta leikja liðsins. Mikill fjöldi hefur fylgst með lýsingunum hjá okkur en mest fylgdust 13.534 með einni lýsingu hjá okkur en það var í oddaleik gegn ÍR í 8-liða úrslitum tímabilið 2014-2015.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson