Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Opna Norðlenska 25.-27. ágúst 2016 - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sverre mætir með sína menn á Opna Norðlenska

18. ágúst 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar

Opna Norðlenska 25.-27. ágúst 2016

Það styttist í að handboltavertíðin fari af stað en Akureyri mun leika sinn fyrsta leik í Olís deildinni þann 10. september. Það er útileikur gegn Stjörnunni. En líkt og undanfarin ár hefst handboltavertíðin hér fyrir norðan með Opna Norðlenska æfingamótinu. Fjögur lið taka þátt í mótinu, úrvalsdeildarliðin FH, Grótta og Akureyri Handboltafélag en þar til viðbótar kemur 1. deildarlið HK til leiks.

Alls verða leiknir sex leikir og hefst mótið fimmtudaginn 25. ágúst en þá mætast Akureyri og FH klukkan 19:00 en Grótta og HK mætast klukkan 20:30. Allir leikir mótsins verða í KA heimilinu.

Föstudaginn 26. ágúst hefst fjörið klukkan 18:00 með leik FH og Gróttu en klukkan 19:30 mætast HK og Akureyri. Mótinu lýkur síðan laugardaginn 27. ágúst, klukkan 10:00 mætast FH og HK en lokaleikurinn hefst klukkan 11:30 þar sem Akureyri og Grótta eigast við.

Í mótslok verða veitt verðlaun fyrir 1. sætið en að venju verða veittar viðurkenningar til besta leikmannsins, besta sóknarmannsins, besta varnarmanns og besta markvarðar.

Mótið er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt fyrir lokaundirbúning liðanna fyrir átök vetrarins. Akureyrarliðið kom í dag heim úr æfingabúðum í Færeyjum þar sem liðið spilaði m.a. þrjá æfingaleiki gegn heimamönnum, þar á meðal færeyska landsliðinu. Akureyri vann alla þrjá leikina býsna örugglega og verður ekki síst fróðlegt að sjá hvernig nýju skytturnar, Karolis Stropus og Mindaugas Dumcius falla inn í liðið en þeir stóðu sig frábærlega í æfingaferðinni.

Öll þátttökuliðin eru með sömu þjálfara og í fyrra, Gróttumenn eru undir stjórn Gunnars Andréssonar sem hefur þjálfað liðið síðastliðin þrjú ár. Halldór Jóhann Sigfússon er við stjórnvölinn hjá FH, Jón Gunnlaugur Viggósson er nýlega tekinn við sem þjálfari HK liðsins og Sverre Andreas Jakobsson stýrir Akureyrarliðinu.

Aðgangseyrir inn á mótið er kr. 1.500- og gildir miðinn inn á alla leiki mótsins. Við hvetjum alla handboltaáhugamenn til að fjölmenna á leikina, alltaf spennandi að kíkja á nýja og öfluga leikmenn. Nánari upplýsingar um mótið koma hér á síðuna.


Norðlenska hefur verið öflugur bakhjarl Akureyrar undanfarin ár

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson