Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Tomas flottur og einnig ungmennliðsmennirnari Sigþór og Arnór
27. nóvember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifar
Afturelding heppið með að ná stigi á heimavelli
Endurkoma Akureyrarliðsins hélt áfram í gær þegar liðið mætti Aftureldingu í Mosfellsbænum. Þarna mættust liðin í efsta og neðsta sæti Olísdeildarinnar og því hefði mátt búast við að þetta yrði leikur kattarins að músinni. En það varð öðru nær, Akureyri tók öll völd á vellinum og komst í 2-5 eftir rúmlega fimm mínútna leik.
Arnór Þorri Þorsteinsson byrjaði í stöðu leikstjórnanda og gerði það vel. Patrekur Stefánsson gat ekki tekið þátt í leiknum vegna veikinda en í hans stað kom inn í hópinn kornungur strákur, Sigþór Gunnar Jónsson.
Afturelding svaraði með tveim mörkum en Akureyri hélt sínu og munurinn áfram 2 til 3 mörk. Akureyri varð síðan fyrir áfalli um miðjan hálfleikinn þegar Karolis Stropus varð að yfirgefa völlinn vegna alvarlegra meiðsla, leikur grunur jafnvel á að hann hafi slitið hásin. Við þetta þurfti að stokka upp sóknarleikinn, Igor kom inn í vinstra hornið í stað Andra Snæs sem tók stöðu leikstjórnanda en Arnór Þorri í hægri skyttuna.
Það var þó ekkert slakað á og Akureyrarliðið bætti við fimm mörkum fram að hálfleik á móti tveim mörkum heimamanna, staðan 8-13 fyrir Akureyri í hálfleik.
Mindaugas var mjög sprækur framan af og Kristján Orri nýtti færin sín vel, Róbert Sigurðarson brá sér nokkrum sinnum í sóknina og skoraði tvö góð mörk líkt og Arnór Þorri. Þá tók Tomas afar mikilvæga bolta í vörninni.
Kristján Orri skartaði nýrri hárgreiðslu og skorar hér úr víti. Mynd: Hanna K. Andrésdóttir visir.is
Andri Snær skoraði fyrsta mark seinni hálfleiksins og munurinn orðinn sex mörk, 8-13 fyrir Akureyri. En þar með kom kafli þar sem ekkert gekk í sókn Akureyrar og næstu fimm mörk voru eign Aftureldingar og munurinn kominn niður í eitt mark.
Sverre tók leikhlé í kjölfarið og Akureyri svaraði með þrem næstu mörkum, staðan 13-17. Spennan hélt áfram, vörn Aftureldingar og markvarsla var allt önnur en í fyrri hálfleiknum en sem betur fer hélt Tomas Olason einnig áfram að verja vel í Akureyrarmarkinu. Nýliðinn, Sigþór Gunnar kom inn í sóknarleikinn og lagði sitt að mörkum, ógnaði vel og skilaði marki.
Akureyri hélt frumkvæðinu, tvö til þrjú mörk og var staðan 20-23 fyrir Akureyri þegar fjórar og hálf mínúta var til leiksloka. En ekki tókst að bæta við marki á þeim tíma, vítakast fór forgörðum en heimamönnum í Aftureldingu tókst að jafna leikinn. Akureyri átti síðustu sókn leiksins en lokaskotið var framhjá þannig að topplið Aftureldingar gat fagnað því að ná stigi út úr leiknum.
Mörk Akureyrar:
Mindaugas Dumcius 6, Kristján Orri Jóhannsson 6 (2 úr vítum), Andri Snær Stefánsson 2 (1 úr víti), Arnór Þorri Þorsteinsson 2, Friðrik Svavarsson 2, Róbert Sigurðarson 2, Igor Kopyshynskyi 1, Karolis Stropus 1 og Sigþór Gunnar Jónsson 1 mark.
Tomas Olason varði 14 skot í leiknum og völdum við hann mann leiksins í annars jöfnu og flottu liði Akureyrar.
Mörk Aftureldingar:
Árni Bragi Eyjólfsson 8 (3 úr vítum), Elvar Ásgeirsson 6, Guðni Már Kristinsson 4, Gestur Ólafur Ingvarsson 3, Jón Heiðar Gunnarsson 1 og Mikk Pinnonen 1.
Kristófer Fannar Guðmundsson hóf leik í marki Aftureldingar og varði 2 skot en Davíð Hlíðdal Svansson sem tók við varði 12 skot, þar af tvö vítaköst.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Akureyri TV
smelltu hér til að horfa á leikinn
.
Með þessu stigi jafnaði Akureyri við Fram og Stjörnuna í deildinni, innbyrðis viðureignir liðanna gera það að verkum að Fram er í 8. sætinu, Akureyri því 9. en Stjarnan á botninum í 10. sæti. Reyndar á Stjarnan inni frestaðan leik gegn Valsmönnum.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson