Til hamingu Kristján Orri
| | 6. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarKristján Orri í úrvalsliði 14. umferðarVefurinn fimmeinn.is velur úrvalslið hverrar umferðar Olísdeildarinnar. Í dag var liðskipan úrvalsliðs 14. umferðar en í þeirri umferð mættust Akureyri og Selfoss. Bæði liðin eiga fulltrúa í liðinu, Kristján Orri Jóhannsson var valinn í hægri hornið og Selfyssingurinn Elvar Örn Jónsson leikstjórnandi.
Annars er liðið skipað sem hér segir: Mark: Kristófer Fannar Guðmundsson, Aftureldingu Vinstra horn: Grétar Þór Eyþórsson, ÍBV. Vinstri skytta: Josip Juric Gric, Valur. Miðja: Elvar Örn Jónsson, Selfoss. Lína: Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV. Hægri skytta: Einar Rafn Eiðsson, FH. Hægri horn: Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri. Kristján Orri í kunnuglegri stöðu og mark í uppsiglingu Við óskum Kristjáni og þeim öllum til hamingju með útnefninguna. |