Sigþór Árni er kominn af stað eftir töluvert hlé
| | 11. desember 2016 - Akureyri handboltafélag skrifarTap gegn Haukum í SchenkerhöllinniEftir þokkalega góðan fyrri hálfleik var staðan 12-10 fyrir Hauka sem höfðu komist í 4-1 og 4-9. Akureyrliðið beit hinsvegar frá sér í seinni hluta hálfleiksins og náði sem áður segir að minnka muninn niður í tvö mörk í hálfleik og liðið virtist vera að ná sér á strik.
Upphaf seinni hálfleiks var hins vegar þveröfugt Haukar tóku öll völd á vellinum og munurinn varð skyndilega átta mörk, 19-11. Næstu fjögur mörk voru Akureyringa sem minnkuðu muninn í fjögur mörk en Haukar létu það ekki slá sig út af laginu og svöruðu með fimm mörkum í röð. Lokatölur 29-19 og óhætt að segja að Akureyrarliðið átti ekki neina möguleika í seinni hálfleiknum. Jákvætt við leikinn var að Sigþór Árni Heimisson kom inn í hópinn á ný, byrjaði reyndar á bekknum en sýndi gamalkunna spretti.
Mörk Akureyrar: Kristján Orri Jóhannsson 6 (1 úr víti), Mindaugas Dumcius 4, Andri Snær Stefánsson ,2 (1 úr víti), Igor Kopyshynskyi 2, Arnór Þorri Þorsteinsson 1, Friðrik Svavarsson 1, Garðar Már Jónsson 1, Patrekur Stefánsson 1 og Sigþór Árni Heimisson 1. Markverðirnir áttu erfitt uppdráttar, Tomas stóð lengst af á milli stanganna og varði 6 skot en Arnar Þór Fylkisson stóð vaktina lengst af í seinni hálfleik og varði 1 skot.
Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 9, Daníel Þór Ingason 5, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 4 (1 úr víti), Heimir Óli Heimisson 3, Janus Daði Smárason 3, Einar Pétur Pétursson 2, Giedrius Morkunas 1, Guðmundur Árni Ólafsson 1 (úr víti) og Þórður Rafn Guðmundsson 1. Giedrius Morkunas reyndist erfiður í marki Hauka og varði 18 skot og Grétar Ari Guðjónsson tók tvö skot undir lok leiksins.
Þessi leikur er búinn og þýðir ekki að hugsa um hann nú er bara að undirbúa lokaleik ársins en laugardaginn 17. desember er heimaleikur gegn Fram og er óhætt að segja að þar þurfa menn að mæta af fullum krafti. |