Arnar Þór Fylkisson stóð fyrir sínu um helgina
HK lagði þó ekki árar í bát og minnkaði muninn í eitt mark. Akureyri hélt frumkvæðinu og virtist ætla að tryggja sér bæði stigin úr leiknum en heppnin var með HK sem náði að jafna í 31-31 um leið og leiktíminn rann út.Engu að síður sterkt hjá Ungmennaliðinu að taka stig af HK sem er í toppbaráttunni.Arnþór Þorri Þorsteinsson og Sigþór Gunnar Jónsson fóru fyrir Akureyrarliðinu í markaskorun með átta mörk hvor. Þá var Elvar Reykjalín traustur í vinstra horninu og Arnþór Gylfi Finnsson og Garðar Jónsson skiluðu sínu vel á lokamínútunum.Hjá HK var það fyrst og fremst skyttan Svavar Kári Grétarsson sem sá til að HK færi ekki tómhent suður eftir helgina en Svavar var algjör yfirburðamaður í liðinu með tólf mörk.Mörk Akureyri U: Arnór Þorri Þorsteinsson 8, Sigþór Gunnar Jónsson 8, Arnþór Gylfi Finnsson 5, Elvar Reykjalín 4, Garðar Már Jónsson 4, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 1 og Heimir Pálsson 1 mark úr víti.Arnar Þór Fylkisson var með fína takta í markinu en hann varði fjórtán skot. Það var ánægjulegt að markvörðurinn Bernharð Anton Jónsson var á skýrslu í dag í fyrsta sinn eftir að hafa hlotið alvarleg augnmeiðsli í upphafi tímabilsins.Mörk HK: Svavar Kári Grétarsson 12, Kristófer Dagur Sigurðsson 4, Arnþór Ingi Ingvason 3, Bjarki Finnbogason 3, Egill Björgvinsson 3, Kristján Ottó Hjálmsson 3, Jósef Samir Ómarsson 2 og Elías Björgvin Sigurðsson 1 mark.Næsti leikur Ungmennaliðsins er heimaleikur gegn Mílunni laugardaginn 18. febrúar.