Arnþór Gylfi var gríðarlega öflugur í leiknum
| | 1. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarFrækinn sigur Ungmennaliðsins á KRStrákarnir í Ungmennaliðinu sýndu og sönnuðu í gærkvöldi að þeir kunna sitthvað fyrir sér í handboltanum þegar þeir tóku á móti KR, einu toppliðanna í 1. deildinni. Arnór Þorri gaf tóninn með fyrsta marki leiksins og í kjölfarið leiddi Akureyri með tveim til þrem mörkum.
KR náði að jafna í 8-8 og komst yfir í stöðunni 9-10 en eftir það var jafnt á öllum tölum fram að hálfleik en þá var staðan 15-15. Arnþór Gylfi Finnsson var þá kominn með fjögur mörk og þeir Hafþór Vignisson og Arnór Þorri með þrjú mörk hvor.
Strákarnir byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og eftir að hafa skorað fjögur mörk í röð höfðu þeir náð þriggja marka forystu á ný, 20-17. KR-ingar virtust ekki alveg með á nótunum en reynsluboltarnir í liði þeirra misstu ekki hausinn og náðu að jafna í 22-22 og í kjölfarið var jafnræði með liðunum og jafnt á flestum tölum upp í 27-27.
Þá kom hreint út sagt frábær kafli Ungmennaliðsins sem skoraði fjögur mörk í röð, staðan 31-27 og KR-liðið virtist hreinlega ekki eiga meira á tankinum. Finnur Salvar Geirsson innsiglaði sigurinn þegar hann kom liðinu í fimm marka forystu 34-29 og engu breytti þó að KR skoraði síðasta mark leiksins, lokatölur 34-30.Sigurreifir piltar eftir sigurinn á KR Aftasta röð: Sigþór Árni Heimisson, Sigþór Gunnar Jónsson, Aron Tjörvi Gunnlaugsson, Finnur Salvar Geirsson, Jóhann Einarsson, Jón Heiðar Sigurðsson, Arnór Þorri Þorsteinsson og Andri Snær Stefánsson Miðröð: Garðar Már Jónsson, Vignir Jóhannsson, Arnar Þór Fylkisson, Ásgeir Kristjánsson, Jóhann Geir Sævarsson og Jason Orri Geirsson Fremstir: Arnþór Gylfi Finnsson og Hafþór Már Vignisson Frábær leikur hjá strákunum og sigurinn sanngjarn, þeir spiluðu fangagóða vörn og sóknarleikurinn gekk smurt líka þar sem nánast allir sem komu inná skoruðu. Með sigrinum settu strákarnir heldur betur strik í reikninginn hjá KR í baráttu þeirra við að komast í umspil um sæti í Olís-deildinni.
Mörk Akureyrar: Arnþór Gylfi Finnsson 9, Hafþór Már Vignisson 7, Arnór Þorri Þorsteinsson 6, Garðar Már Jónsson 3, Aron Tjörvi Gunnlaugsson 2, Jóhann Geir Sævarsson 2, Sigþór Gunnar Jónsson 2, Finnur Salvar Geirsson 1, Jason Orri Geirsson 1 og Vignir Jóhannsson 1 mark. Arnar Þór Fylkisson átti prýðisgóðan leik í markinu með 18 skot varin. Ásgeir Kristjánsson kom og reyndi við vítakast.
Mörk KR: Arnar Jón Agnarsson 7, Bergur Elí Rúnarsson 7, Theódór Ingi Pálmason 5. Jóhann Gunnarsson 3, Þórir Jökull Finnbogason 3, Viktor Orri Þorsteinsson 2, Andri Berg Haraldsson 1, Haukur Friðriksson 1 og Pétur Gunnarsson 1.
Lokaleikur Ungmennaliðsins í deildinni verður í Garðabæ, föstudaginn 7. apríl. Eins og staðan er fyrir lokaumferðina er Stjarnan einu stigi yfir Akureyri þannig að leikurinn mun skera úr um hvort liðið verður í áttunda sæti deildarinnar. |