Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Akureyri kveður efstu deildar handbolta að sinni5. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifarTap í Garðabæ og fall úr efstu deild staðreynd Akureyri mætti í gær í Garðabæinn og lék þar hreinan úrslitaleik við Stjörnuna um áframhaldandi veru í efstu deild. Akureyri þurfti sigur en heimamönnum dugði hinsvegar jafntefli. Það varð strax ljóst að hér yrði um hörkuslag að ræða en Akureyri byrjaði betur og komst í 1-3 og 2-4 en eftir það var jafnt á öllum tölum uns 8 mínútur lifðu af fyrri hálfleiknum og staðan var 11-11. Þá kom slakur kafli hjá okkar mönnum sem heimamenn nýttu sér og staðan í hálfleik var 15-11. Þegar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum var staðan orðin 20-14 fyrir Stjörnunni og útlitið ekki gott fyrir Akureyri þá kviknaði betur á okkar liði og munurinn minnkaði jafnt og þétt. Minnstur varð munurinn tvö mörk í stöðunni 23-21 og enn rúmar sjö mínútur til leiksloka. Þá kom stórfurðulegur dómur hjá dómurum leiksins þar sem Róbert Sigurðarson uppskar beint rautt spjald sem og blátt fyrir brot á Ólafi Gústafssyni. Leikurinn var ekki stoppaður útaf brotinu og í fyrstu virtust dómararnir ætla að sleppa refsingu en eftir ofsafengin viðbrögð Stjörnumanna fór rauða spjaldið á loft, stórfurðulegt í alla staði. Heimamenn nýttu sér þetta vel og kláruðu leikinn á endanum 28-23 og halda því sæti sínu í efstu deild á sama tíma og Akureyri kveður efstu deild að sinni. Þetta tímabil fór ekki eins og áætlað var en það má segja að þetta hafi verið stöngin út hjá okkur í vetur. Ótrúlegur fjöldi jafnra leikja sem á endanum gáfu engin stig í bland við ótal meiðsli lykilmanna eru stærstu orsök þessa endis. Við þökkum þó fyrir allan stuðninginn í vetur og komum ferli í gang sem kemur okkur aftur í hóp þeirra bestu. Fletta milli frétta Til baka Senda á Facebook