Warning: Undefined variable $udleiks in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 16
Yfirlýsing frá KA, Þór og ÍBA vegna handboltans á Akureyri - Akureyri Handboltafélag
  Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það virðist vera komið að leiðarlokum

10. maí 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar

Yfirlýsing frá KA, Þór og ÍBA vegna handboltans á Akureyri

Í morgun birtu íþróttafélögin KA og Þór ásamt ÍBA eftirfarandi tilkynningu á heimasíðum sínum:

Undanfarnar vikur hafa átt sér stað viðræður milli KA og Þórs með milligöngu ÍBA um áframhaldandi samstarf félaganna um rekstur Akureyri handbolta og KA/Þórs í kvennahandbolta.

Félögin hafa skipst á hugmyndum sínum og framtíðarsýn um uppbyggingu handknattleiks á Akureyri og skoðað alla möguleika á frekara samstarfi. Í þeim viðræðum hefur komið í ljós að félögin hafa mismunandi sýn á það hvernig best sé að standa að rekstri, samstarfi og uppbyggingu handboltans á Akureyri.

KA hefur því í framhaldinu ákveðið að ekki sé þörf á frekari viðræðum og samstarfi félaganna um rekstur sameiginlegs liðs undir merkjum Akureyrar handbolta. Félögin útiloka ekki samstarf í rekstri kvennaflokka.

Þór og KA þakka fulltrúum ÍBA fyrir sín störf í viðræðunum og óska hvort öðru velfarnaðar í uppbyggingu og keppni á handboltavellinum næstu árin.

Fyrir hönd félaganna
Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA
Valdimar Pálson framkvæmdastjóri Þórs



Þar með er ljóst að dagar Akureyrar Handboltafélags eru taldir. Stjórnarmenn og ýmsir sem hafa komið að daglegu starfi félagsins munu hittast á morgun og ræða sína stöðu í ljósi þessara tíðinda.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson