Warning: Undefined array key "frettanr" in /web/akhandadmin/public_html/index.php on line 15 Tap í Garðabæ og fall úr efstu deild staðreynd - Akureyri Handboltafélag
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og Svavar Ólafur Pétursson
Umfjöllun
Tengdar fréttir
Sverre ræddi málin við helstu miðlana að leik loknum
5. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Viðtöl eftir leikinn í Garðabæ
Akureyri missti sæti sitt meðal þeirra bestu eftir tap í Garðabænum í gær og voru menn eðlilega ekki upplitsdjarfir að leik loknum. Morgunblaðið, Vísir og Fimmeinn.is ræddu við þjálfarateymi Akureyrar og má sjá viðtölin hér fyrir neðan.
Á mbl.is ræddi Kristján Jónsson við Sverre Andreas Jakobsson og Einar Jónsson:
Sverre: Nýttum ekki líflínuna
„Tómleiki, spennufall og sjálfsvorkunn,“ sagði Sverre Jakobsson, þjálfari Akureyrar, spurður um hvað færi í gegnum hugann þegar niðurstaðan lá fyrir í Garðabæ í kvöld. Akureyri tapaði þar 28:23 fyrir Stjörnunni í lokaumferð Olís-deildarinnar og féll þar með úr efstu deild.
„Mér líður illa fyrir hönd strákanna minna sem hafa lagt mikið á sig í allan vetur. Þeir hafa alltaf barist og hefðu átt að fá verðlaun fyrir það í lok tímabilsins. En þegar örlögin eru í þínum höndum þá verður þú að standa þig. Við fengum þessa líflínu að geta komist upp fyrir Stjörnuna með sigri í kvöld en nýttum hana ekki.“
Fara þarf rúma þrjá áratugi aftur í tímann til að finna tímabil þar sem Akureyringar áttu ekki lið í efstu deild karla í handbolta. Óheppnin elti Akureyringa á röndum í vetur og skakkaföllin í leikmannahópi liðsins voru með ólíkindum mikil. Sverre kveinkaði sér lítið yfir því meðan á tímabilinu stóð en spurður um hvort þessi skakkaföll hafi riðið baggamuninn sagði Sverre þau alla vega hafa haft mikil áhrif en vildi ekki taka dýpra í árinni.
„Við erum búnir að ganga í gegnum mikið mótlæti í allan vetur. Í janúar gátum við ekki farið í æfingaferð vegna manneklu. Ég þurfti að taka fram skóna seint á tímabilinu og það var ekki staða sem ég óskaði mér. Á tímabilinu misstum við báða markverðina út og spiluðum með fjóra hornamenn inni á í nokkrum leikjum. Þetta er búið að vera ótrúlega erfitt, ég viðurkenni það alveg núna. Um leið krefjandi og lærdómsríkt. Strákarnir hafa haldið haus og við náðum að hala inn stig fyrir jól sem átti fræðilega séð að vera ómögulegt. Okkur tókst það með samheldni. Liðið var samt mjög laskað í janúar og þessi staða er eiginlega engu liði bjóðandi. Hvort þessi skakkaföll hafi verið of mikil eða ekki veit ég ekki. Ég hef bara þá heimspeki að þjálfari eigi að búa til lið úr því sem hann er með í höndunum,“ sagði Sverre en Akureyringar unnu öll liðin í næstu fjórum sætum fyrir ofan í annarri umferðinni en töpuðu fyrir þeim öllum í þriðju umferðinni.
Sverre reif fram skóna á tímabilinu og lagði allt undir
Einar: „Við gleðjumst yfir okkar stöðu“
Stjarnan hafnaði í 9. sæti og liðið er tæknilega séð fallið niður í næstefstu deild. Iðulega hafa tvö lið fallið úr tíu liða deild. Stjörnumenn halda hins vegar sæti sínu ef 20 eða fleiri lið tilkynna þátttöku í úrvalsdeild og 1. deild 2017-2018 en það skýrist endanlega 9. maí. Útlit er fyrir að svo fari og þá endurheimtir Stjarnan sæti sitt í efstu deild.
„Óhætt er að segja að þetta sé mikill léttir. Maður er hálfmeyr. Þetta er búið að vera erfitt tímabil. Langt og strangt. Á ýmsu hefur gengið. Þetta er niðurstaða sem við erum mjög ánægðir með og var í raun okkar fyrsta markmið. Erfiðlega hefur gengið hjá Stjörnunni að halda sér í efstu deild, alla vega í langan tíma. Okkur tókst það og sennilega í einni erfiðustu deild í langan tíma því þetta hefur verið ótrúlega jafnt. Frábær lið og í raun og veru synd að lið eins og Akureyri fari niður sem er hrikalega flott lið. Við gleðjumst yfir okkar stöðu,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, þegar mbl.is ræddi við hann í kvöld. Einar segist ekki hafa fylgst með gangi mála hjá Gróttu og Fram. Sá möguleiki var fyrir hendi að Stjarnan færi upp fyrir Fram og þá í úrslitakeppnina.
„Nei ég heyrði bara af úrslitunum eftir leikinn. Ég ætlaði mér að einbeita mér að því að klára þennan leik með sigri. Við gátum ekki verið að spá í því sem ekki er í okkar höndum. Ég vissi auðvitað af möguleikanum en Framliðið hefur verið ótrúlegt í vetur. Þeir hafa verið flottir og eiga þetta bara skilið.“
Einar fagnar í leik Stjörnunnar og Akureyrar. Ljósmynd Kristinn Magnússon mbl.is
Á vísi ræddi Kristinn Páll Teitsson einnig við Sverre og Einar ásamt því að ræða við Ingimund Ingimundarson.
Sverre: Erfitt að kyngja þessu
„Það er rosalega erfitt að kyngja þessu, við komum inn í leikinn, vissum hvað þyrfti til og lögðum allt í þetta en það vantaði herslumuninn til að sigra þennan leik,“ sagði Sverre Andreas Jakobsson svekktur að leikslokum eftir að ljóst var að Akureyri væri fallið niður úr deild þeirra bestu.
Sverre sagði töfluna ekki ljúga, það hefði vantað upp á í vetur en að þeir hefðu aldrei gefist upp.
„Við erum neðstir af ástæðu en ég ætla samt ekkert að taka neitt af liðinu. Við gátum auðveldlega gefist upp og vorkennt okkur með snuð í munni miðað við allt sem gekk á en við höfum aldrei gert það, gáfumst ekki upp og fengum líflínu sem okkur tókst ekki að nýta.“
Það var margt sem fór úrskeiðis hjá Akureyringum í dag.
„Okkur tókst ekki sem lið að láta hlutina smella á öllum vígstöðum í dag. Við eigum fínustu spretti en það þurfti meira til eftir að við gáfum þeim auðveld mörk undir lok fyrri hálfleiks. Það vantaði aðeins á öllum sviðum handboltans í kvöld og það gerir útslagið,“ sagði Sverre sem sagði þetta vera síðasta leik ferilsins.
„Þeir eru að fara upp í hillurnar, skórnir, í þriðja skiptið en ég geri ráð fyrir að halda áfram sem þjálfari að reyna að byggja upp nýtt lið. Við erum að missa nokkra lykilleikmenn og það er hluti af harkinu að vera með lið út á landi en við erum bjartsýnir á framhaldið og það opnar vonandi dyr fyrir aðra leikmenn,“ sagði Sverre sem tók undir að það væri súrt að enda á tapi.
„Ég mun aldrei ná þessu úr mér en við reyndum allaveganna og reyndum í dag og í vetur.“
Einar: Leikmennirnir geta verið stoltir af framlagi sínu og frammistöðu í vetur
„Við komum okkur í þá stöðu að þetta var algjör úrslitaleikur, miðað við hvernig þetta hefur þróast í vetur erum við bara heilt yfir sáttir með lokaniðurstöðuna,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, sigurreifur að leikslokum.
„Ég held að þetta skili okkur nú sæti í Olís-deildinni á næsta ári og ég horfi ekki á þetta með neinum öðrum augum. Við komum inn í þennan leik með augastað á úrslitakeppninni en þurftum að treysta á önnur úrslit sem féllu ekki með okkur.“
Garðbæingar komu af krafti inn í leikinn og söfnuðu upp brottvísunum framan af.
„Spennustigið var kannski aðeins of hátt hjá okkur, við eyddum full miklum tíma manni færri inná og vorum að brjóta illa af okkur. Maður sá að menn voru vel gíraðir og kannski aðeins of en eftir að við stilltum okkur af vorum við góðir allan leikinn.“
Gestirnir frá Akureyri minnkuðu forskotið úr sex mörkum í tvö en Garðbæingar héldu haus og lokuðu leiknum.
„Við höfum oft verið með gott forskot og misst það niður en okkur tókst að standast áhlaup þeirra þegar þetta var komið í tvö mörk og bæta í.“
Nýliðar Stjörnunnar halda því sæti sínu í deild þeirra bestu á næsta tímabili og var Einar bara nokkuð brattur.
„Þetta er búið að vera mjög erfitt og lærdómsríkt ár, bæði fyrir mig og alla þá sem koma að liðinu. Þetta er stór áfangi fyrir Stjörnuna því það er langt síðan Stjarnan hélt sér í efstu deild og leikmenn mega vera stoltir af sínu framlagi og frammistöðu í vetur,“ sagði Einar sem sagðist þó ekki vera búinn að læra á línuna hjá aganefnd HSÍ.
„Ég mun sennilega aldrei gera það, ég þarf greinilega að fara að hegða mér betur,“ sagði Einar glottandi að lokum en hann tók í tvígang út bann í vetur.
Ingimundur: Margir ekki rétt stilltir í dag
„Þetta er auðvitað drullu fúlt, við komum hingað og ætluðum að ná í önnur úrslit en við þurfum að taka þessu,“ sagði Ingimundur Ingimundarsson, þjálfari Akureyrar, svekktur að leikslokum.
„Líkt og oft áður í vetur vantaði herslumuninn, ef við hefðum náð að takast betur á við það í vetur værum við eflaust ekki í þessari stöðu í kvöld.“
Jafnt var með liðunum á fyrstu tuttugu mínútunum en þá setti Stjarnan í lás og skyldi gestina eftir.
„Við byrjum af fínum krafti en náum ekki að fylgja því eftir, varnarleikurinn small aldrei í dag og fyrir vikið kom markvarslan ekki. Þá fengum við engin af þessum auðveldu mörkum, hraðaupphlaupum og úr seinni bylgjunni. Svo gerum við allt of mikið af mistökum í sóknarleiknum.“
Spennustigið virtist á köflum ná til leikmanna Akureyrar.
„Það er kannski ekki rétt að tala um einbeitingarleysi, það eru ekki margir í hópnum sem hafa spilað svona leik og kannski er það okkar þjálfaranna að hafa ekki stillt þá rétt í dag. Menn lögðu sig fram eins og þeir gátu en við fengum ekki út úr því sem við vildum.“
Ingimundur var ekki sáttur með tapið í gær
Að lokum ræddi Fimmeinn.is málin við Sverre.
Sverre: „Hvað verður um lið sem falla í 1.deildina?“
„Þetta er bara ömurlegt og maður er bara mjög tómur eitthvað og niðurdregin af því hver niðurstaðan varð því við áttum alveg séns í að láta þetta ekki fara svona“.
Sagði Sverre Jakobsson þjálfari Akureyrar eftir tapið gegn Stjörnunni í gærkvöldi sem þýddi að lið Akureyar er fallið í 1.deildina.
En hver er svona að þínu mati aðalástæðan fyrir að liðið er nú farið niður um deild? „Það má sjálfsagt taka ótal punkt saman, en þeir sem fylgst hafa með í vetur vita að þetta er búið að vera ofboðslega erfiður vetur.“
„Við vorum afar óheppnir með meiðsli leikmanna í vetur og náum í raun aldrei að stilla okkar sterksta liði upp. Meiðslin voru einnig þess eðlis og mörg að við náum ekki í lið til að æfa í janúar mánuði sem er frímánuður í deildinni“.
„En ég er samt stoltur af því hvað mínir leikmenn sýndu, þeir gáfust aldrei upp og héldu alltaf áfram og voru að fórna ansi miklu í þetta hjá sér fyrir liðið. Alveg sama hvað kom upp, þá héldu þeir alltaf áfram“.
„Það þarf bara að setjast niður og gera þettta tímabil upp í rólegheitunum því auðvitað eru þetta vonbriði að svona sé komið fyrir liðinu“.
En nú spyrja sig margir af því hvað verði um lið Akureyrar, þarna eru sterkir leikmenn sem sjálfsagt fara? „Já, það var líka alveg vitað að leikmenn myndu fara eftir tímabilið. Við vissum að Tomas yrði ekki með okkur á næsta ári, eins vissum við að Bergvin og Krissi myndu líka fara eftir tímabilið, en við eigum fullt af góðum handboltastrákum sem vonandi hafa áhuga á að gera eitthvað meira“.
„Hvað hefur orðið um þessi lið sem hafa fallið? Mér sýnist þau öll hafa komið til baka og gert það vel, þar höfum við lið eins og Aftureldingu, Selfoss og ÍBV meðal annars. Ég óttast þetta ekkert, en það þarf samt að halda vel á spöðunum núna“.
„Eins og ég sagði þá eigum við unga stráka, við megum ekkert detta í eitthvert svartnætti heldur að huga vel að því sem við eigum. Einnig þurfum við svo bara hreinlega að sjá af hverju þetta gerðist“.
Þessi úrslitaleikur gegn Stjörnunni gekk svona næstum því upp hjá okkur. Við vorum ágætir varnarlega og vorum kannski svona 90% þar og með markvörsluna. Það vantaði svona samt aðeins upp á að við kæmust í hraðaupphlauupin okkar og við vorum að gera svona aulamistök hér og þar. það vantaði líka aðeins upp á meiri skynsemi. En margt gott samt þarna sem ég sá. En svoleiðis má kannski segja að þetta hafi rúllað hjá okkur í vetur“.
Verður þú áfram með liðið í 1.deildinni? „Já, ég á ekki von á öðru ég er með samning og ég mun ekki hoppa frá borði. Þeir geta rekið mig, en ef þeir ákveða að gera það ekki verð ég áfram“.
„Ég skammast mín ekkert fyrir það sem ég hef gert hér með liðið og ég held meira að segja að ég megi klappa sjálfum mér á bakið og gefa mér sjálfum smá hrós fyrir hvað ég hef verið að vinna fyrir félagið og vonandi bara kunna aðrir líka að meta það. Ef ekki þá er ég ekkert hættur að þjálfa, það kemur þá bara eitthvað annað upp“.
Sigþór Árni átti stórleik gegn Stjörnunni 2014
4. apríl 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur dagsins: Allt undir í Garðabænum í kvöld
Það ætti ekki að þurfa að minna á leikinn mikilvæga í kvöld og þá staðreynd að það er frítt í hópferð á leikinn sem fer frá Íþróttahöllinni klukkan 14:00. Þeir sem fara með rútunni fá þar að auki frítt inn á leikinn í Garðabænum.
Akureyri og Stjarnan hafa oft tekist vel á í leikjum sínum og oft gengið á ýmsu. Hér á eftir er sýnishorn frá leik liðanna þann 25. september árið 2014 í þriðju umferð Olís deildar karla. Akureyri var þá enn án sigurs og útlitið var ekki bjart þegar langt var liðið á seinni hálfleikinn og gestirnir leiddu með sex mörkum. En Akureyrarliðið sýndi gríðarlegan karakter, kom sér aftur inn í leikinn og vann að lokum fjögurra marka sigur.
Sigþór Árni Heimisson fór á kostum í þessum leik og skoraði 11 mörk. Aðrir af núverandi leikmönnum sem tóku þátt í þessum leik voru Kristján Orri Jóhannsson, Friðrik Svavarsson, Andri Snær Stefánsson, Sverre Andreas Jakobsson og Tomas Olason. Auk þeirra var Ingimundur Ingimundarson í leikmannahópnum.
Það er allt undir í þessum leik
31. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Frí hópferð á Stjörnuleikinn á þriðjudaginn
Ákveðið hefur verið að bjóða stuðningsmönnum Akureyrar upp á fría hópferð á leikinn mikilvæga gegn Stjörnunni á þriðjudaginn. Það verður frítt í rútuna og sömuleiðis fá ferðalangarnir frítt inn á leikinn sjálfan. Lagt verður af stað frá Íþróttahöllinni á Akureyri stundvíslega klukkan 14:00 á þriðjudaginn og síðan haldið norður strax eftir leik. Það er mikilvægt fyrir okkur að vita um þátttöku upp á að áætla hve stóra rútu þarf að panta. Því er óskað eftir að áhugasamir skrái sig með því að fylla út formið hér að neðan.
Nú liggur fyrir að ferðin verður farin, en áhugasamir eru samt beðnir um að skrá sig hér að neðan fyrir klukkan 10:00 á þriðjudagsmorgun svo að hægt sé að panta hæfilega stóra rútu.
Það er svo sannarlega ekki öll nótt úti enn!
29. mars 2017 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri enn á lífi - úrslitaleikur á þriðjudaginn
Óhætt er að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í Olís-deildinni í kvöld. Trúlega hafa margir verið búnir að afskrifa möguleika Akureyrar á að halda lífi í draumnum um að forðast botnsæti deildarinnar.
Það voru erfiðar stundir hjá strákunum í fluginu heim eftir leikinn því ef Stjarnan ynni Gróttu þá væri baráttan töpuð. Síðustu fréttir sem strákarnir höfðu áður en þeir þurftu að slökkva á símunum í flugvélinni voru að Stjarnan væri fimm mörkum yfir og stemmingin skiljanlega í daprara lagi í vélinni.
En eftir nokkra stund gargaði Friðrik Svavarsson yfir alla vélina að leikurinn hefði endað 31-31 en jafnframt að hann væri búinn að slökkva aftur á símanum.
Óhætt er að segja að þungu fargi hafi létt af mönnum og stemmingin heldur betur léttari það sem eftir var flugferðarinnar.
Nú er sem sé ljóst að leikur Stjörnunnar og Akureyrar verður hreinn úrslitaleikur um 9. sætið í deildinni sem að öllum líkindum þýðir áframhaldandi veru í Olís-deildinni næsta tímabil. Sá leikur verður í TM-Höllinni í Garðabæ klukkan 19:30 á þriðjudaginn líkt og allir leikir lokaumferðarinnar.
Það er óhætt að segja að nú sé ástæða til að fylgja strákunum á völlinn og tryggja að Akureyringar verði fjölmennir og láti duglega í sér heyra á pöllunum. Áfram Akureyri!