Andri Snær Stefánsson með magnað mark gegn Val
11. mars 2017
Akureyri lagði Val að velli 22-20 í KA-Heimilinu þann 11. mars 2017. Fyrirliði Akureyrar hann Andri Snær Stefánsson kom liðinu yfir í 19-18 þegar skammt lifði leiks með ótrúlegu marki úr hraðaupphlaupi þegar flestir reiknuðu með að hann myndi ekki ná til knattarins, sjón er sögu ríkari!