Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




Bein lýsing
N1 deildin 4. desember kl. 19:30 Mýrinni Garðabæ
Stjarnan
 
Akureyri
0
-
0
00:00
Góðan daginn. Leikmenn Akureyrar eru mættir í Garðabæinn og eru byrjaðir að hita upp.


Tími   Staða   Skýring
Góðan daginn. Leikmenn Akureyrar eru mættir í Garðabæinn og eru byrjaðir að hita upp.
Nú fer að styttast í að leikurinn hefjist. Leikmenn eru að ganga í salinn
Í dag er nýr, kornungur leikmaður í hópnum Geir Guðmundsson en hann er einungis 15 ára gamall
0:02 Stjarnan hefur hafið leikinn
0:24 1-0 Guðmundur Guðmundsson skorar fyrir Stjörnuna með skoti í gegnum vörnina
0:53 Slæm sending og Stjarnan er komin í sókn
1:21 Hafþór ver en Stjarnan fær boltann
1:47 Oddur klikkar í hraðaupphlaupi, Stjarnan í sókn
2:16 Hafþór ver og Akureyri í sókn
2:46 Gústaf missir boltann og Stjarnan í sókn
3:17 Vörnin ver í hornkast
3:53 2-0 Guðmundur eykur muninn fyrir Stjörnuna
4:35 Hafþór ver meistaralega
4:47 2-0 Oddur klikkar í hraðaupphlaupi, dæmd á hann lína
5:31 3-0 Guðmundur Guðmundsson skorar þriðja mark sitt fyrir Stjörnuna
5:47 Akureyri missir boltann
6:10 Stjarnan með skot framhjá
6:40 Dæmd lína á Hörð Fannar
7:34 4-0 Stjarnan fær vítakast og skorar
7:52 4-1 Hörður Fannar skorar af línunni eftir sendingu frá Jonna
8:20 Stjarnan fær vítakast
8:41 En Hafþór ver vítið með tilþrifum
9:09 4-2 Anton skorar með flottu skoti
9:39 Enn fær Stjarnan vítakast
9:45 5-2 Guðmundur skorar úr vítinu
10:05 Hörður Fannar fær sömuleiðis vítakast
10:20 5-3 Jónatan skorar úr vítinu
11:29 Oddur klikkar úr hraðaupphlaupi
11:44 6-3 Stjarnan skorar úr hraðri sókn
12:30  Stjarnan missir mann útaf
12:45 6-4 Andri Snær skorar úr vinstra horninu
13:30 Hreinn lætur verja frá sér í hraðaupphlaupi
14:10 6-5 Andri Snær skorar
15:30 6-6 Anton jafnar með glæsiskoti
16:00 7-6 Guðmundur kemur Stjörnunni yfir
17:49 Stjarnan vinnur boltann
18:25 8-6 Stjarnan skorar í þriðju tilraun
18:55 8-7 Hörður Fannar með mark eftir ævintýralega sendingu Jonna
19:28 9-7 Stjarnan skorar fyrir utan
19:57 Hörður Fannar með fínt færi en skotið er varið, Stjarnan í sókn
20:24 10-7 Stjörnumenn auka enn muninn
21:21 10-8 Heiðar Þór skorar vægast sagt skrautlegt mark úr vinstra horninu
21:55 Hörður Fannar vinnur vítakast
22:16 10-9 Jónatan skorar úr vítinu
23:13 10-10 Andri Snær skorar úr hraðaupphlaupi
23:49 Hafþór ver en Stjarnan heldur boltanum
24:07 Stjarnan missir boltann
24:28 10-11 Jónatan kemur Akureyri yfir með góðu uppstökki
24:28 Stjarnan tekur leikhlé
24:39 Stjarnan fær vítakast
24:56 11-11 Guðmundur jafnar úr vítinu
25:14 Geir kemur inná í hægri skyttuna
25:37 12-11 Stjarnan skorar eftir að við misstum boltann útaf
26:28 Stjarnan vinnur boltann en fær á sig ruðning
27:02 Geir fær vítakast
27:07 12-12 Jónatan skorar úr vítinu
27:21  Stjarnan missti tvo menn útaf fyrir vítið áðan
27:55 12-13 Andri Snær brýst í gegn og skorar
28:29 13-13 Stjörnunni tekst að skora tveim færri
28:56 14-13 Þeir vinna boltann og skora úr hraðri sókn
29:47   Rúnar rekinn útaf
30:00 Hafþór ver og tíminn rennur út
30:00 Mörk Akureyrar hafa skorað: Andri Snær 4, Jónatan 4 (3 víti), Anton og Hörður 2 hvor og Heiðar Þór 1
30:00 Áhorfendur eru ekki mjög margir en virðast flestir vera á bandi Akureyrar
30:00 Seinni hálfleikur fer að hefjast og það er Akureyri sem mun byrja
30:00 Leikurinn er hafinn
30:39 Andri Snær fær á sig ruðning
30:57 15-13 Stjarnan skorar með bylmingsskoti
31:36 16-13 Ragnar Helgason skorar eftir að vörn Stjörnunnar varði skot Antons
32:26 Hörður Fannar vinnur víti með tilþrifum
32:55 16-14 Jónatan skorar úr vítinu
33:12 Hafþór ver meistaralega
33:29 Oddur klikkar í dauðafæri, Stjarnan í sókn
33:50 Stjarnan með skot framhjá
34:32 17-14 Misheppnuð sending og Ragnar eykur muninn fyrir Stjörnuna
35:21 Rúnar með skot sem er varið, Stjarnan í sókn
35:51 18-14 Guðmundur er okkur erfiður og skorar enn og aftur
36:48 Anton með skot yfir
37:24 18-15 Heiðar Þór skorar úr hraðaupphlaupi
37:53 19-15 Fannar Friðgeirsson skorar með dúndurskoti
38:57   Andri Snær fiskar einn Stjörnumann útaf
39:05 Oddur lætur verja frá sér úr opnu færi
39:08   Oddur er rekinn útaf, talinn hafa stjakað við markverðinum en enginn botnar neitt í þessum dómi!
39:36 Heiðar Þór fer inn úr horninu en það er varið, Stjarnan með boltann
40:39 Hafþór ver
40:49 19-16 Jónatan skorar með gegnumbroti
41:20 Hafþór ver
41:29 Heiðar Þór skýtur yfir úr hraðaupphlaupi
42:16 Hreinn klikkar í hraðaupphlaupi, ekkert dæmt, ótrúlegt
43:01 Hafþór ver en Stjarnan fær vítakast
43:24 Hafþór ver vítið
44:04 Dæmt tvígrip á Hörð Fannar
44:25 Rúnar með skot en það er varið og Stjarnan er komin í sókn
44:53 20-16 Guðmundur Guðmundsson skorar með lúmsku skoti
45:37 Andri Snær vinnur vítakast
45:55 20-17 Jónatan skorar af öryggi
46:27 Hafþór ver og Akureyri með boltann
47:11 Jónatan með skot sem vörnin tekur
48:01 21-17 Guðmundur skorar fyrir Stjörnuna, þetta er að verða fullmikið af því góða
48:36 Tíminn er stopp
48:36 Leikurinn hefst á ný
48:50 21-18 Gústaf með flott mark fyrir utan
49:28 Vörnin ver en Heiðar Þór klikkar í vinstra horninu
50:12 Stjarnan með skot framhjá
50:59 Akureyri fær aukakast, Stjörnumenn ekki sáttir, allt að verða vitlaust
51:50 Andri Snær með skot í stöng, Akureyri með boltann
51:52 21-19 Gústaf skorar fyrir utan
52:18 22-19 Fannar skorar
52:47  Stjörnumaður útaf fyrir fót
52:59 Hörður Fannar fær vítakast
53:15 Jónatan lætur verja en Akureyri heldur boltanum
53:39 Anton með skot yfir
54:31 Oddur lætur verja úr fínu færi
55:09 23-19 Guðmundur er óstöðvandi og skorar enn og aftur
55:36 24-19 Stjarnan skorar eftir lélega sendingu
56:04 25-19 Stjarnan komin í sókn og skorar
56:23 Akureyri tekur leikhlé, þessi lokakafli hefur verið afleitur hjá okkar mönnum
56:51 26-19 Stjarnan skorar úr hraðaupphlaupi
57:39 Hafþór ver hraðaupphlaup
57:54 Atli Ævar fer inn úr horninu en það er varið
58:26 26-20 Atli Ævar skorar, vippar snyrtilega yfir markvörð Stjörnunnar
58:54 27-20 Fannar skorar fyrir Stjörnuna
59:33 Geir með skot yfir
59:58 Stjarnan skýtur yfir og þar með lýkur leiknum
60:00 Mörk Akureyrar hafa skorað: Jónatan 7 (5 víti), Andri Snær 4, Anton, Gústaf, Heiðar Þór og Hörður Fannar 2 mörk hver og Atli Ævar 1.
60:00 Þetta var sorglegur endir á leiknum, aragrúi af dauðafærum fór forgörðum og því fór sem fór
60:00 Við þökkum fyrir okkur í dag en minnum á næsta leik sem er útileikur gegn HK næsta fimmtudag

Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson