Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Unglingaflokkur kvenna leikur í efri deildinni í ár
19. september 2006 -
ÁS skrifar
Unglingaflokkur kvenna í efri deildina
Unglingaflokkur kvenna lék um helgina í forkeppni þar sem keppt var um laus sæti í efri deild flokksins. Stelpurnar stóðu sig ótrúlega vel og tryggðu sér sæti í efri deildinni. Það verður gaman að sjá hvernig stelpunum mun ganga í vetur en við skulum kíkja á leiki liðsins um nýliðna helgi.
Leikið var í Safamýri og var fyrsti leikur við Hauka 2. Með öflugri vörn í fyrri hálfleik þá náði lið Akureyrar góðri forystu og leiddu þær í hálfleik 10-4. Stelpurnar slökuðu svo aðeins á í seinni hálfleik en sigurinn var aldrei í hættu og voru lokatölur 22-17.
Næst var leikið við FH og var sigur Akureyrar aldrei í hættu en staðan var 10-3 í hálfleik og í seinni hálfleik bættu stelpurnar bara við og lokatölur voru Akureyri 23 FH 7.
Næsti leikur var gegn virkilega öflugu liði Fram. Fram er með virkilega öflugt lið sem varð deildarmeistari á síðustu leiktíð. Lið Akureyrar komst aldrei í takt við leikinn, í hálfleik var staðan 14-7 fyrir Fram og lokatölur voru svo 27-18 fyrir Fram.
Í síðasta leiknum tóku stelpurnar lið Völsungs í kennslustund en í hálfleik var staðan 18-7 og lokatölur voru svo 37-10.
Þessi úrslit þýða það að lið Akureyrar í unglingaflokki kvenna tryggði sér annað sætið í forkeppninni og fara þær því upp í efri deildina.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson