Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Heiðar Aðalsteinsson hefur verið að spila vel á undirbúningstímabilinu og lofar mjög góðu fyrir veturinn

21. september 2006 - SÁ skrifar 

3 æfingaleikir hjá Akureyri um helgina

Um helgina mun Akureyri Handboltafélag fara suður í ferð að leika þrjá æfingaleiki á tveimur dögum. Tæpar 2 vikur eru í fyrsta leik og liðin því á seinustu metrum undirbúningi síns fyrir Íslandsmótið. Á Sjallamótinu náði lið Akureyrar ekki að spila á sínu sterkasta liði því þá var m.a. Hörður Fannar Sigþórsson erlendis, einnig voru menn eins og Magnús Stefánsson ekki alveg orðnir klárir af meiðslum. Liðið verður hins vegar í leikjunum þremur skipað leikmönnum sem munu spila fyrir Akureyri í byrjun Íslandsmótsins og er það afar kærkomið að liðið fái leiki með þeim mannskap. Í liðið mun þó auðvitað enn vanta landsliðsmarkmanninn Hreiðar Levý Guðmundsson sem verður vonandi klár í byrjun nóvember af bátsbeinsmeiðslum sínum.

Fyrsti leikurinn hjá Akureyri er við Hauka á morgun, föstudag, klukkan 18:00. Á laugardaginn verða svo tveir leikir, sá fyrri klukkan 9:00 gegn Víkingi og sá síðari í hádeginu gegn Fylki.
Ljóst er að um hörku æfingaleiki er þarna að ræða en bæði Haukar og Fylkir munu berjast við Akureyri í vetur.

Heimasíðan mun að sjálfsögðu greina frá leikjunum um leið og unnt er og fara í allt það markverðasta frá þeim.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson