Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jarmila hélt Akureyri nokkurn veginn á floti

9. október 2006 - SMS skrifar 

Kvennalið Akureyrar: Tap í Safamýri

Kvennaliðið er vissulega ekki að fá óska byrjun í DHL deild kvenna. En liðið tapaði með 8 mörkum gegn Fram í safamýrinni á laugardaginn, 29-21. Liðið hefur því tapað fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu og er neðst án stiga. Öll önnur lið í deildinni hafa náð í stig og er liðið aðeins að missa af lestinni, en kíkjum aðeins á leikinn.

Liðið lagði upp í ferðalag suður á föstudags eftirmiðdegi og var komið suður seint um kvöldið. Leikurinn var svo klukkan 15:00 í Safamýri gegn spútnik liði Fram. Fram-stelpurnar hafa komið mikið á óvart í vetur og eru í 4.sæti eins og stendur eftir þennan sigur. Fram var spáð næst neðsta sæti í vetur, og eina liðið fyrir neðan þær var lið Akureyrar. En það sem við höfum ekki gert hafa Frammarar gert, en þær hafa sýnt spámönnum að þær eru harðar í horn að taka, en þær unnu einmitt bikarmeistara Hauka óvænt í fyrstu umferð og gerðu svo jafntefli við sterkt lið Vals á dögunum. En aðeins að leiknum sjálfum.

Eins og hefur einkennt þetta lið í byrjun tímabils að þær spila alltaf bara einn hálfleik. Eins og á móti FH hérna í KA-heimilinu spiluðu þær glæsilegan fyrrihálfleik en töpuðu seinni stórt, það sama var upp á teningnum fyrir sunnan í gær. Tveir leikmenn geta verið sáttar við leik sinn en það eru Jarmila Kucharska, markvörður liðsins og Erla Hleiður Tryggvadóttir en þær tvær voru ástæðurnar fyrir því að um einungis 8 marka tap var að ræða. Erla var markahæst með 7 mörk og Jarmila lokaði markinu á tímabili og er ritað um það á heimasíðu Fram að hún hafi komið í veg fyrir að sigurinn var aðeins 8 mörk eins og raun bar vitni. Inga Dís Sigurðardóttir og Ester Óskarsdóttir náðu sér ekki á strik, en Ester fékk að líta beint rautt spjald fyrir gróft brot.

Næsti leikur er heimaleikur gegn liði ÍBV en þær hafa ekki farið vel á stað í vetur og eru þær aðeins með 2 stig eftir 3 leiki, sá leikur er klukkan 16:00 þann 14. október í KA-heimilinu, en sá dagur er laugardagur. Meira um þann leik síðar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson