Aigars og liðsfélagar hans þurfa að bíða með það að leggja Íslandsmeistara Fram
| | 16. október 2006 - ÁS skrifar
Leik Akureyrar og Fram frestaðLeikur karlaliðs Akureyrar og Fram sem átti að fara fram á sunnudaginn 22. október hefur verið frestað um mánuð og verður leikinn 22. nóvember. Þetta hefur verið gert vegna mikils leikjaálags sem er á liði Fram en liðið hefur verið að leika að undanförnu í Meistaradeild Evrópu. 22. nóvember er miðvikudagur og verður leikurinn spilaður klukkan 19:00. Leikurinn mun fara fram á heimavelli Fram, Safamýri.
Akureyri og Fram eru jöfn með 3 stig eftir þrjá leiki. |