Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Selfoss liðið er svolítið spurningamerki

17. október 2006 - ÁS skrifar 

SS-Bikarinn: Akureyri mætir Selfossi á morgun

Á morgun fer karlalið Akureyrar til Selfoss til að leika í 32-liða úrslitum SS-Bikarsins. Það vita allir hve mikilvæg bikarkeppnin er og verður gaman að sjá hvernig Akureyri mun vegna í bikarkeppninni. Selfoss er að leika í 2. deildinni og er með nokkuð öflugt lið.

Selfoss gerði jafntefli við Víking/Fjölni í síðasta leik á útivelli. Fyrir það tapaði liðið gegn Haukum 2 á útivelli og verður bikarleikurinn við Akureyri fyrsti heimaleikur Selfoss á tímabilinu.

Það er ljóst að þetta verður stærsti leikur Selfoss manna á tímabilinu og það er alveg öruggt að þeir munu gefa sig alla í leikinn. Sebastian Alexandersson þjálfari liðsins lagði skóna á hilluna í leik gegn KA á síðasta tímabili en það er aldrei að vita nema hann dragi fram skóna fyrir leikinn. Þá mun Arnar Gunnarsson fyrrum leikmaður Þórs væntanlega verða í leikmannahópi liðsins.

Rúnar Sigtryggsson og Hörður Fannar Sigþórsson sem fengu rautt spjald í leiknum gegn Haukum mega spila leikinn en verða í banni í leiknum við Fylki sem er næsti leikur í deildinni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson