Bjartur Máni mætir Akureyri
| | 1. nóvember 2006 - ÁS skrifar
SS Bikar karla: Akureyri mætir ÍR2Dregið var í 16-liða úrslit SS-Bikars karla nú rétt í þessu og dróst lið Akureyrar Handboltafélag gegn liði ÍR2. ÍR2 hefur heimaleikjaréttinn en í liði ÍR2 leikur meðal annars Bjartur Máni Sigurðsson sem lék með KA á síðustu leiktíð. Ljóst er að ÍR2 er þægilegur andstæðingur en þó ber að varast vanmat þar sem liðið sló út Víking/Fjölni í 32-liða úrslitum.
Leikið verður væntanlega 15. nóvember og þá í Austurbergi. Önnur lið sem voru í pottinum voru Íslandsmeistarar Fram, Bikarmeistarar Stjörnunnar, Deildarbikarmeistarar Hauka, Fylkir, ÍR, Valur, Höttur, ÍBV, FH 2, Haukar U, Leiknir 2, Stjarnan 2 og Þróttur Vogum. |