Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðmundur átti fína spretti í dag

18. nóvember 2006 - SÁ skrifar 

2. flokkur: Sigur á HK

2. flokkur Akureyrar lék sinn fyrsta heimleik í dag þegar liðið mætti HK en sem kunnugt er mætast meistaraflokkslið liðanna á morgun. Akureyri var yfir lengst af í leiknum, leiddi 13-8 í hálfleik og vann að lokum 29-25 sigur. Við skulum kíkja nánar á leikinn.

HK byrjaði leikinn betur og komst í 1-3. Akureyri kom þá með næstu þrjú mörk og leiddi 4-3 en eftir það komst HK aldrei yfir. Smám saman nær Akureyri yfirhöndinni og komast í 8-5. Fram af hálfleik bætti liðið aðeins við muninn og staðan í hálfleik Akureyri 13, HK 8.
Þrátt fyrir fimm marka forskot Akureyrar var spilamennska liðsins ekkert sérstök en í sókninni vantaði allan kraft og var boltinn að ganga illa milli manna.

Seinni hálfleikur var mjög svipaður þeim fyrri nema að mörkin voru nokkuð fleiri. Akureyri leiðir 20-15 en næstu þrjú mörk voru frá HK og staðan orðin 20-18. Eftir það var munurinn 2-3 mörk og komst HK aldrei nær Akureyri en það en Akureyri vann að lokum 29-25 sigur.

Þrátt fyrir að HK hafi náð að minnka muninn í tvo mörk var sigur okkar stráka aldrei í hættu. Það virtist engu skipta þó liðið væri að leika slaka sókn eða ætti slaka kafla, HK liðið var einfaldlega ekki í nógu góðum klassa til að sigra leikinn.
Strákarnir eiga mjög mikið inni miðað við þennan leik en fyrir það fyrsta vantar allan kraft og hraða í leik liðsins.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson