Hverjir verða mótherjar Akureyrar Handboltafélags í 8-liða úrslitum SS-Bikarsins?
| | 21. nóvember 2006 - ÁS skrifar
SS-Bikarinn: Dregið í 8-liða úrslit á morgunÁ morgun verður dregið í 8-liða úrslit SS-Bikarsins og er okkar lið, Akureyri Handboltafélag, í pottinum. Dregið verður klukkan 12:25 og mun heimasíðan flytja fréttir af drættinum eins fljótt og unnt er. Það verður virkilega áhugavert að sjá hverjir verða mótherjar Akureyrar og hvort Akureyri fái heimaleik.
Liðin sem eru í pottinum eru: DHL-Deild Akureyri, Fram, Haukar, ÍR og Stjarnan 1. deild karla FH, Haukar U og ÍBV
Leikirnir í 8-liða úrslitum eru settir á miðvikudaginn 6. desember en það getur breyst. |