Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Sveinbjörn varði 7 bolta í dag

27. desember 2006 - ÁS skrifar 

U-19: 4 marka tap gegn Þýskalandi

Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri lék í dag gegn Þýskalandi á hinu árlega Hela Cup sem er haldið í Þýskalandi. Í liðinu eru 3 Akureyringar en það eru Sveinbjörn Pétursson markvörður, Ásbjörn Friðriksson leikstjórnandi og Hákon Stefánsson vinstri skytta.

Strákarnir byrjuðu mjög vel og eftir fyrri hálfleikinn þá voru þeir yfir 9-11. Því miður missti Íslenska liðið dampinn í síðari hálfleik og náðu Þjóðverjar að sigra 22-18. Slæmt að ná aðeins að skora 7 mörk í síðari hálfleik og það var klárlega það sem varð liðinu að falli.

Sveinbjörn stóð sig með prýði í markinu og varði 7 bolta meðan hann var í markinu. Ásbjörn og Hákon náðu ekki að setja mark sitt á leikinn.

Þrátt fyrir tapið geta strákarnir borið höfuðið hátt en á morgun leika þeir gegn Póllandi og gegn Sviss. Strákarnir þurfa að hefna fyrir gríðarlega stórt tap gegn Póllandi fyrr á árinu en lokatölur þá voru Ísland 23 Pólland 49.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson