Andri Snær hefur verið að leika með 2. flokki í vetur
| | 19. janúar 2007 - SÁ skrifar
2. flokkur: Tveir leikir um helgina2. flokkur Akureyrar fer suður um helgina en þar mun liðið leika tvo leiki. Fyrri leikurinn er gegn Haukum á Ásvöllum á laugardag klukkan 19:00. Áður hafa þessi tvö lið leikið í vetur en Akureyri hefur unnið báða leikina til þessa nokkuð örugglega. Á sunnudag klukkan 12:00 fer Akureyri til Kópavogs og sækir HK heim. Fyrr í vetur hafa liðin mæst en þá vann Akureyri góðan sigur á HK, á heimavelli, 29-25. |