Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það gekk ekki um helgina

13. febrúar 2007 - SMS skrifar 

Kvennabolti: HK vann Akureyri

HK tók á móti Akureyri í Kópavogi á laugardaginn, fyrir leikinn var HK í 7. sæti með 7 stig, en Akureyri í því níunda með 1 stig. Jafnt var með liðunum framan af leiknum en svo sigu HK frammúr í lokinn og unnu sigur 23-19. Staðan var 12-11 í hálfleik, heimaliðinu í vil.

Ekki var nógu gott að tapa þessum leik þar sem þetta var leikur sem gat dottið báðu megin. Jarmila Kucharska átti stórleik í marki Akureyrar og varði til að mynda 6 víti og var með yfir 20 bolta varða í leiknum og er það ástæðan fyrir því að Akureyri fékk aðeins á sig 23 mörk. Ekki er gott að skora aðeins 19 mörk og þarf aðeins að slípa sóknina betur ef við ætlum okkur fleiri stig í vetur.

Markahæst í liði Akureyrar var Erla Hleiður Tryggvadóttir en hún skoraði 7 mörk, næst kom Þórsteina Sigurbjörnsdóttir með 5, Lilja Þórisdóttir með 3 og svo skoruðu Jóhanna, Auður, Emma og Guðrún sitt markið hver.

Næsti leikur er heimaleikur gegn Val, laugardaginn 17. febrúar kl 16:00 og verður það gífurlega erfiður leikur, enda Valsliðið mjög sterkt. Nánar verður fjallað um hann síðar.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson