Það eru frábærar fregnir að Hörður Fannar sé samningsbundinn Akureyri tvö ár í viðbót
| | 16. febrúar 2007 - SÁ skrifar
Hörður Fannar skrifar undir tveggja ára samningLínumaðurinn sterki Hörður Fannar Sigþórsson var að skrifa undir tveggja ára samning við Akureyri Handboltafélag. Þetta eru frábærar fregnir fyrir Akureyri því Hörður hefur verið að leika mjög vel með liðinu í vetur. Hörður, sem er 24 ára gamall, er leikmaður í mikilli framför og hefur hann á seinustu árum stórbætt sig sem handboltamaður. Hann er fanta varnarmaður og getur verið hreint óstöðvandi í sókninni. Ljóst er að ef Hörður heldur áfram á sama krafti er hann farinn að banka all verulega á landsliðsdyrnar á næstunni. |