Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hörður Fannar vill fá baráttuna aftur
24. febrúar 2007 -
SÁ skrifar
Hörður Fannar vongóður um að báráttan komi á morgun
Hörður Fannar Sigþórsson skrifaði undir nýjan tveggja ára samning fyrir Akureyri á dögunum en þessi 24 ára línumaður hefur verið að leika vel í vetur. Við tókum viðtal við hann og spurðum hann meðal annars út í HK leikinn á morgun.
SÁ: Hörður Fannar þú skrifaður undir nýjan samning á dögunum. Ertu tiltölulega sáttur með hann?
Hörður: Já, mjög svo.
SÁ: Þú semur til tveggja ára. Ertu ánægður með handboltann á Akureyri og annað?
Hörður: Já svona hingað til hefur þetta verið fínt nema kannski bara seinustu tveir leikir hjá okkur sem voru vægast sagt ömurlegir. Hins vegar er bara bjart yfir þessu.
SÁ: Ertu bjartsýnn á framhaldið?
Hörður: Já, við erum með sterkan hóp. Núna verðum við bara að ná að finna okkar fyrra form aftur frá því fyrir jól.
SÁ: Eins og þú segir þá voru þarna tveir skelfilegir leikir. Kanntu einhverja skýringu á því?
Hörður: Menn eru bara ekkert að mæta klárir í leikina. Það er held ég það bara. Menn eru ekki að berjast og þess vegna hefur þetta farið svona.
SÁ: Staðan orðin slæm en liðið verður bara að fara að spila á sinni réttu getu aftur?
Hörður: Já það er nóg eftir af þessu móti og við eigum að geta halað inn einhver stig. Þetta er náttúrulega allt í einum pakka og við megum ekki misstiga okkur mikið meira ef við ætlum að halda okkur í deildinni.
SÁ: Það er HK á sunnudaginn, ertu spenntur fyrir þeim leik?
Hörður: Já, ef við náum upp baráttunni og sóknarleik þá ætti þetta að verða hörkuleikur.
SÁ: Ef að baráttan kemur þá kemur allt annað með ekki satt?
Hörður: Jú, ef að vörnin er góð þá kemur markvarsla og svo koll af kolli.
Heimasíðan þakkar Herði fyrir og minnir á leikinn klukkan 16:00 í Digranesi á morgun.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson