Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Elmar getur verið sáttur við fyrsta sætið

12. mars 2007 - SÁ skrifar 

2. flokkur vinnur sína deild

2. flokkur Akureyrar tryggði sér um helgina efsta sætið í 2. flokks keppni karla með tveimur stórsigrum á Gróttu. Fyrri leikurinn var á föstudaginn og unnu Akureyrarmenn hann 38-25 eftir að hafa verið 19-12 yfir í hálfleik en um algjöra yfirburði Akureyrar var að ræða og sigurinn aldrei í hættu. Seinni leikurinn var í raun mjög svipaður og annað burst hjá Akureyri staðreynd. Núna unnu strákarnir enn stærra 37-23 eftir að hafa verið 18-10 yfir í hálfleik.

Með þessum stórsigrum tryggir Akureyri sér fyrsta sætið í norðurdeild 2. flokks og spila því við liðið í fjórða sæti í suðurdeildinni. Akureyrar liðið í 2. flokk hefur lengi vel framan af vetri verið langt frá því að sýna sinn besta leik en að undanförnu hefur leikur liðsins farið mikið fram og spilamennskan um helgina til dæmis frábær á köflum. Það er því krafa á að Akureyri fari alla leið í úrslitaleikinn í 2. flokk.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson