Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Ieva og Stelmokas blómum skrýdd

29. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mynd af tvíburaforeldrunum

Eins og við greindum frá í gær eignuðust Andreas Stelmokas fyrrum leikmaður Þórs og KA og nú leikmaður Füchse Berlin í Þýsku Bundesligunni og kona hans Ieva tvíbura í síðustu viku.

Í kjölfar fréttarinnar leitaði Þórir Tryggvason, hirðljósmyndari okkar í myndasafninu sínu og fann þessa skemmtilegu mynd af þeim hjónum sem trúlega er tekin þegar hann var valinn íþróttamaður ársins hjá KA.

Þá vill svo skemmtilega til að fyrir nákvæmlega tveim árum (29. nóvember 2005) birtist á KA síðunni viðtal sem Stefán Árnason tók við Stelmokas sem þá lék með Göppingen í Þýskalandi. Í viðtalinu segir Stelmokas m.a.

"Við söknum Akureyri mikið. Hér eyddum við fimm árum ævi okkar og lítum á bæinn sem okkar annað heimili núna. Konan mín, Ieva, og ég munum vel eftir Brynjuísnum og því hve falleg jólin voru á Akureyri, með öllum ljósunum. Við söknum vina okkar og KA-manna mikið."

Hægt er að lesa allt viðtalið við Stelmokas með því að smella hér.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson