Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Liðið sýndi svo sannarlega hvað í því býr í dag
16. desember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar
Stórsigur Akureyrar á ÍBV
Það var ekki leiðinlegt að vera í KA-heimilinu í gær þegar sprækir Vestmannaeyingar komu í heimsókn. Reyndar tafðist leikurinn um rúman hálftíma þar sem dómarar leiksins lentu í seinkun hjá Flugfélaginu. Leikurinn var hraður og fjörlegur strax frá byrjun, Akureyri með frumkvæðið án þess þó að hrista Eyjamenn af sér. Eftir sextán mínútna leik hafði Akureyri náð fjögurra marka forystu 11-7 en Eyjamenn neituðu að gefast upp, skoruðu næstu fjögur mörk og jöfnuðu þar með leikinn. Aftur var jafnt í stöðunni 12-12 og tuttugu mínútur búnar af leiknum.
Vörn Akureyrar hafði ekki alveg náð taktinum þessar mínútur og réð illa við Sergiy Trotsenko, stórskyttu Eyjamanna sem skoraði nánast að vild á þessum tíma. Sömuleiðis var gamli maðurinn Gintaras Savukynas, þjálfari þeirra liðtækur sem leikstjórnandi, þó að hann skoraði ekki mikið sjálfur þá var hann ótrúlega útsjónasamur og bjó til fjöldamörg færi fyrir sína menn með eitruðum sendingum hvað eftir annað.
En þegar hér var komið sögu var Akureyringum nóg boðið, vörnin small saman og Sveinbjörn varði það sem komst í gegn. Í kjölfarið komu fjölmörg mörk úr hraðaupphlaupum þannig að í hálfleik leiddi Akureyri með fimm marka mun, 19-14.
Sveinbjörn fór hamförum í markinu í fyrri hálfleik varði sautján skot, þar af eitt vítakast.
ÍBV skoraði fyrstu tvö mörk síðari hálfleiks en eftir það áttu þeir engan séns í Akureyrarliðið sem fór á kostum í síðari hálfleiknum og hreinlega valtaði yfir Eyjamenn. Eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik fór Einar Logi meiddur af leikvelli eftir gróft brot og kom ekki meira við sögu í leiknum en hafði þá skorað sex mörk.
Yfirburðir liðsins á öllum sviðum héldu áfram og jókst munurinn jafnt og þétt og var gaman að sjá að liðið slakaði ekkert á og keyrði af fullum krafti allt til leiksloka og stóð uppi með stórsigur 40-26.
Liðið í heild á hrós skilið fyrir leikinn, allir leikmenn tóku þátt í leiknum og skiluðu sínu vel. Það er þó ekki á nokkurn hallað þó sérstaklega verði getið um markvörslu Sveinbjarnar en hann kom greinilega gríðarlega einbeittur til leiks og varði alls 28 skot, þar á meðal tvö vítaköst og verðskuldar titilinn maður leiksins.
Loksins tókst að innbyrða tvö stig á heimavelli og var vissulega kominn tími til. Nú tekur við langt hlé á N1 deildinni og á liðið ekki leik fyrr en 2. febrúar þegar haldið verður í Mosfellsbæinn og leikið gegn Aftureldingu. Vonandi nota leikmenn tímann vel og mæta til leiks í febrúar af þeim krafti sem liðið hefur verið að sýna í síðustu leikjum, þá þarf ekki að efast um árangur í stigasöfnuninni.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson