Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Stelpurnar sýndu flottan leik á laugardaginn
15. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Sigur og tap hjá unglingaflokki kvenna
Unglingaflokkur kvenna hjá Akureyri Handboltafélagi lék tvo deildarleiki um helgina gegn sterku liði Stjörnunnar. Fyrir leikina var Stjarnan eina taplausa liðið í deildinni og hafði raunar unnið alla sex leiki sína. Fyrri leikurinn var í Höllinni á laugardaginn og er skemmst frá því að segja að Akureyrarstelpurnar mættu einbeittar til leiks, staðráðnar í að hefna fyrir tapið í meistaraflokksleiknum sem þá var nýlokið. Stjarnan hafði þó betur til að byrja með og leiddi með tveim mörkum í hálfleik.
Það hefur greinilega verið kraftur í hálfleiksræðu Jóhannesar þjálfara því að í seinni hálfleik snerist dæmið gjörsamlega við og stelpurnar léku við hvern sinn fingur og sýndu sinn albesta leik í vetur. Það er skemmst frá því að segja að Akureyrarstelpur unnu glæsilegan fimm marka sigur, 32-27 og fyrsta tap Stjörnunnar staðreynd.
Liðin mættust svo aftur á sunnudaginn en því miður tókst Akureyrarstúlkum ekki að fylgja eftir sigrinum frá deginum áður. Stjarnan leiddi með tveim mörkum í hálfleik, 10-12 og leiknum lauk síðan með þriggja marka sigri Stjörnunnar 19-22.
Eftir þessa tvo leiki eru stelpurnar í fjórða sæti deildarinnar með 8 stig eftir 8 leiki, fjóra sigra og fjögur töp. Þá eru þær komnar í 8-liða úrslit bikarkeppninnar og eiga því alla möguleika á að komast lengra þar.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson