Frábær sigur hjá strákunum í dag
| | 5. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar2. flokkur karla: Kominn í undanúrslit í bikarnumAkureyrarliðið í 2. flokki karla er komið í undanúrslit bikarkeppninnar eftir glæsilegan sigur, 33:28, á Valsmönnum í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda í Reykjavík í kvöld. Okkar menn voru yfir allan tímann, höfðu yfirleitt eitt til þriggja marka forskot, og sigurinn var sanngjarn. Liðið lék frábæra vörn, markvarslan var góð og sagði Geir þjálfari Aðalsteinsson að mjög liðsheild hefði skipt sköpum.
Akureyri á því lið í undanúrslitum bikarkeppninnar bæði í 2. og meistaraflokki karla; sannarlega glæsilegur árangur og spennandi að fylgjast með framhaldinu. Í undanúrslitum 2. flokks eru líka komin lið Víkings, HK og Stjörnunnar.
"Við leggjum mikið upp úr góðri liðsheild og í kvöld var hún eins og okkar áttundi maður. Strákarnir stóðu sig mjög vel; vörnin var góð, markvarslan líka og við náðum góðri keyrslu upp völlinn. Sóknarleikurinn var líka mjög öflugur og strákarnir voru skynsamir," sagði Geir Kristinn í samtali við heimasíðuna rétt áðan.
Akureyri hafði þriggja marka forskot í hálfleik, 14:11.
Mörkin skiptust sem hér segir: Ásbjörn Friðriksson 10, Heiðar Þór Aðalsteinsson 6, Hákon Stefánsson 5, Eiríkur Jónasson 3, Fannar Kristmannsson 2, Valdimar Þengilsson 2, Gústaf Línberg 2, Bjarni Jónasson 1, Oddur Grétarsson 1 og Arnar Már Bjarnason 1.
Eins og sjá má er breiddin mikil í liðinu; alls gera 10 leikmenn mark í leiknum í kvöld.
Arnar Sveinbjörnsson stóð í markinu fyrstu 35 mínúturnar og lék mjög vel, að sögn þjálfarans. Sveinbjörn Pétursson kom svo sterkur inn og varði líka mjög vel síðustu 25 mínúturnar. "Enda báðir með frábæra vörn fyrir framan sig," sagði Geir.
Þess má geta að okkar gamli vinur, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, fyrrverandi þjálfari Þórs og leikmaður bæði með Þór og KA, var Geir bróður sínum til halds og trausts á hliðarlínunni. "Hann kom með margar góðar ábendingar," sagði Geir í kvöld, sigri hrósandi.
Þetta gæti því orðið gott bikarár fyrir Akureyri Handboltafélag þar sem þrjú af liðum félagsins eru komin í undanúrslit bikarkeppni sinna flokka, bæði karlaliðin eins og áður segir svo og unglingaflokkur kvenna. |