Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur stóð sig frábærlega eins og allt liðið





12. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Mfl. karla: Magnaður sigur á Stjörnunni

Það var ekki leiðinlegt að vera í KA heimilinu í kvöld þegar Akureyri handboltafélag tók á móti Stjörnunni úr Garðabæ. Strákarnir hikstuðu reyndar dálítið í byrjun leiksins þegar Stjarnan skoraði fyrstu þrjú mörk leiksins en þá komust okkar menn á blað og unnu sig smám saman inn í leikinn. Eftir tæplega tíu mínútna leik jafnaði Jónatan leikinn í 6-6 og eftir það hafði Akureyri frumkvæðið allt til leiksloka.

Munurinn varð mestur þrjú mörk í fyrri hálfleik en þó náði Stjarnan að jafna í 13-13 þegar 26 mínútur voru liðnar og fór þá að fara um áhorfendur. Strákarnir létu það þó ekkert á sig fá og náðu aftur þriggja marka forystu áður en hálfleiknum lauk 19-16.

Bæði lið léku hraðan og skemmtilegan handbolta því þrátt fyrir mikinn markafjölda var markvarslan býsna góð. Sóknarleikur Akureyrar gekk afbragðsvel og markaskorunin dreifðist mikið. Framan af hálfleiknum átti vörnin í erfiðleikum með línumanninn Kysil sem skoraði megnið af mörkum Stjörnunnar en þegar á leið tókst betur að halda aftur af honum.

Framan af síðari hálfleik hélst yfirleitt eins til tveggja marka munur, Akureyri þó alltaf með yfirhöndina. Þegar Stjarnan minnkaði muninn í 24-22 kom frábær leikkafli þar sem vörnin og Sveinbjörn lokuðu gjörsamlega á allar leiðir Stjörnunnar, strákarnir skoruðu á þessum tíma þrjú mörk í röð og náðu fimm marka forystu 27-22. Í þessari stöðu tók Stjarnan leikhlé og jafnframt kom Ronald Valur í markið hjá þeim.

Þetta virtist hafa góð áhrif á Stjörnumenn sem hægt og bítandi unnu upp muninn þannig að þegar fimm mínútur voru til leiksloka var munurinn aðeins eitt mark 30-29 og gamlir lokamínútnadraugar farnir að gera vart við sig. En strákarnir blésu á allar slíkar vangaveltur og kláruðu leikinn með stæl, skoruðu næstu þrjú mörk og unnu glæsilegan og sanngjarnan sigur 34-32 þar sem Stjarnan skoraði síðasta mark leiksins.

Eins og áður er nefnt var leikurinn mjög hraður og skemmtilegur. Það er erfitt að gera upp á milli leikmanna liðsins sem áttu frábæran dag allir sem einn og virkilega flott að rífa sig upp eftir dapran útileik um helgina og sýna nú einhvern albesta leik tímabilsins. Sérstaklega var gaman að sjá nýliðann Odd Grétarsson sem lék mjög vel í vinstra horninu allan leikinn, skoraði sex mörk og var alls ófeiminn að taka af skarið þrátt fyrir að vera enn að leika með 3. flokki.

Mörk Akureyrar: Magnús Stefánsson 8, Oddur Grétarsson 6, Goran Gusic 5, Jónatan Magnússon 4/1, Einar Logi Friðjónsson 4, Hörður Fannar Sigþórsson 3, Ásbjörn Friðriksson 2/1, Þorvaldur Þorvaldsson 2.
Sveinbjörn Pétursson stóð í markinu allan leikinn og átti góðan dag, varði 22 skot, þar af eitt víti.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson