Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hörður skoraði fimm mörk í dag

15. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Meistarafl. karla: Haukar sigruðu Akureyri

Nýbakaðir Íslandsmeistarar Hauka sigruðu Akureyri, 29:27 en liðin mættust á Ásvöllum fyrr í kvöld.

Eftirfarandi umfjöllun er tekin af handbolti.is.

Haukar byrjuðu leikinn með miklum látum og allt virtist stefna í enn einn stórsigurinn hjá liðinu. Þeir spiluðu frábæran fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum 17:9. Sókn Akureyringa var mjög slök og fengu Haukamenn hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru.

Akureyringar mættu gríðarlega öflugir til leiks í seinni hálfleik og minnkuðu forskot Hauka jafnt og þétt. Mikil spenna var á lokakafla leiksins þar sem Akureyri náði að minnka forustuna í 1 mark. En Haukar fóru með sigur af hólmi 29:27.

Mörk Hauka:
Gísli Jón Þórisson 7, Freyr Brynjarsson 5, Andri Stefan 4,Jón Karl Björnsson 3, Elís Már Halldórsson 2, Gunnar Berg Viktorsson 2, Þröstur Þráinsson 2, Kári Kristjánsson 2, Tjörvi Þorgeirsson 1, Pétur Pálsson 1.
Gísli Guðmundsson varði 11 skot í markinu og Aron Rafn Eðvarðsson 5.

Mörk Akureyrar:
Jónatan Þór Magnússon 7, Hörður Fannar Sigþórsson 5, Einar Logi Friðjónsson 4, Magnús Stefánsson 3, Ásbjörn Friðriksson 3, Nikolaj Jankovic 2, Andri Snær Stefánsson 1, Oddur Grétarsson 1, Heiðar Þór Aðalsteinsson 1.
Í markinu varði Sveinbjörn Pétursson 10 skot.

Eftirfarandi frásögn er tekin úr Morgunblaðinu
Um tíma stefndi í stórsigur meistaranna. Þeir höfðu átta marka forskot eftir fyrri hálfleikinn og náðu mest níu marka í seinni hálfleik en hvort einhver ,,timburmenni“ hafi gert vart sig hjá leikmönnum Hafnarfjarðarliðsins í síðari hálfleik skal ósagt látið. Altént slökuðu þeir á og gerðust værukærir og það nýttu Akureyringar sér í vil og náðu fyrir vikið að bjarga andlitinu og hleypa óvæntri spennu í leikinn. Jónatan Þór Magnússon minnkaði muninn fyrir norðanmenn, 28:27, með marki úr vítakasti tveimur mínútum fyrir lok leiksins. Haukar misstu boltann þegar um 1 mínúta var eftir og Akureyringar brugðu á það ráð að skipta markverðinum út af og leika með aukamann í sókninni. Ekki tókst betur til en þeir misstu boltann klaufalega 40 sekúndum fyrir leikslok og þar sem Haukar brunuðu fram gátu gestirnir ekki skipt markverði sínum inn á. Ásbjörn Friðriksson útileikmaður Akureyrarliðsins stóð því á milli stanganna í síðustu sókn Hauka og honum tókst ekki að verja skot Elísar Más Halldórssonar sem innsiglaði sigur Haukanna.
Vörn og markvarsla var í molum hjá norðanmönnum í fyrri hálfleik og áhugaleysi ríkjandi en leikur liðsins var miklu betri í seinni hálfleik.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson