Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Spá er ekki raunveruleikinn, sá hlær best sem síðast hlær!

17. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Ný spá um deildina - Arnar Pétursson hefur trú á Akureyri

Þjálfarar og fyrirliðar liðanna í N1-deild karla komu saman á fundi í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Íslands í gær. Rúnar Sigtryggsson og Jónatan Magnússon flugu suður til að taka þátt í fundinum og herma heimildir að gengið hafi á ýmsu í fluginu enda veruleg ókyrrð í lofti. Auk þeirra var Árni Sigtryggsson okkar maður á fundinum.

Eitt helsta tilefni fundarins var að opinbera spá fyrirliðanna og þjálfaranna um gengi liðanna í vetur. Liðunum voru gefin stig og var niðurstaða þeirra sem hér segir:

Haukar (228 stig)
Valur, (203 stig)
HK, (195 stig)
Fram, (174 stig)
Stjarnan, (143 stig)
Akureyri, (113 stig)
FH, (110 stig)
Víkingur, (82 stig)

Samkvæmt spánni verða Haukar Íslandsmeistarar í ár en athygli vekur að Akureyri er spáð betur hér heldur en í spá spekinganna á sport.is sem töldu að Akureyri myndi hafna í neðsta sætinu.

Það er hins vegar ljóst af niðurstöðu spárinnar að menn telja Akureyri og FH vera á svipuðu róli og því ljóst að leikur þessara liða á morgun er gríðarlega mikilvægur. Þess vegna er enn meiri ástæða til að hvetja alla velunnara til að mæta í Íþróttahöllina og standa með sínum mönnum.

Á vefnum handbolti.is er Arnar Pétursson, fyrirliði Haukaliðsins spurður hvort hann telji eitthvert lið eiga eftir að koma á óvart í vetur? Svar Arnars var svohljóðandi:

"Já ég held að Akureyri eigi eftir að koma á óvart. Hef meiri trú á þeim en margur annar. Ég á einnig von á því að FH komi á óvart. Það er fullt af flottum handboltamönnum í hópnum hjá þeim þó sumir séu kannski fullþungir um þessar mundir."
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson