Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Frábær stemming fyrir leikinn í kvöld
18. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri - FH: Fyrst og fremst tilhlökkun í gangi
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, er hér í spjalli við vefinn handbolti.is um leikinn í kvöld gegn FH og það jákvæða og ferska starf sem nú er unnið í kringum m.a. stuðningsmenn fyrir Norðan.
Nú er ykkar fyrsti heimaleikur í kvöld, býstu við góðri stemmingu í Höllinni?
Já, ég á von á að það verði góðmennt í kvöld.
Verður þú með númer í kvöld?
13
Hvernig líst þér á að spila með litla bróður?
Frábært, ég er búinn að bíða eftir þessu lengi og þetta er endapunkturinn á ferilinn.
Er þetta ekki ykkar fyrsti leikur saman?
Já.
Hvað hafið þið Norðanmenn verið að gera til að fá fólk til að koma á leikina í vetur?
Það er búið að stofna stuðningsmannaklúbb. Síðan fá allir iðkenndur yngri flokka í handboltanum á Akureyri svarta boli í samstarfi við Kaupþing, en bolirnir verða tilbúnir fyrir næsta heimaleik. Ætlunin er að færa liðið nær yngri iðkenndunum og fá þá á alla leiki vetrarins og mynda svartan her á heimaleikjunum. Svo erum við t.d. með húsband sem mun spila í kringum leikinn í kvöld og svo erum við með ýmislegt á prjónunum.
Nú eruð þið með stuðningsklúbb sem þið m.a. bjóðið upp á súpu fyrir leik, er þetta nokkuð öflugur hópur af fólki í klúbbnum?
Það var byrjað að selja í klúbbinn fyrir 9 dögum og það voru komnir yfir 100 manns í klúbbinn í gærkvöldi (miðvikudagskvöld). Ásamt matnum, þá er ætlunin að vera með leiki í boði úr Evrópuhandboltanum eða síðasta útileik á breiðtjaldi. Þjálfari mund c.a. 15 mín. Fyrir leik tala við klúbbinn um komandi leik og í hálfleik mun aðstoðarmaður koma snöggt upp og halda stutta tölu þar sem farið verður yfir fyrri hálfleikinn og hvað verður gert í seinni hálfleiknum, áður en hann fer inn í klefa. Þannig að klúbbmeðlimir verða „nær" leiknum en ella. Einnig munu leikmenn koma í klúbbinn strax að leik loknum og ræða leikinn. Svo verður ýmislegt annað gert, sem gerir það vonandi enn meira spennandi að vera í Stuðningsmannaklúbbi AHF.
Er góð stemming fyrir handboltanum á Akureyri um þessar mundir?
Já, eins og um allt land. Fólk í kringum liðið hefur verið mjög jákvætt við leikmenn og aðstandendur liðsins nú á síðustu vikum og sýnt okkur stuðning, sem ekki hefur verið kannski verið mikið af fyrstu 2 ár félagsins. Fólk er að átta sig á því að þetta er lið bæjarins og er hætt að flokka liðið niður í fortíðareiningar eða eftir persónum, enda á liðið að vera sterkara en einstaklingarnir. En núna eru einhvernveginn allir til í verkefnið þó að fyrirfram sé vitað að þetta verður erfið brekka, þá eru allir af vilja gerðir til þess að taka á því og klífa fjallið.
Ertu bjartur fyrir ykkar hönd fyrir vetrinum?
Það er fyrst og fremst tilhlökkun í gangi. Við erum e.t.v. ekki með sömu nöfn og önnur lið í sínum 14 manna hópum, en það er betra að hafa 7 leikmenn sem vilja en 14 sem þurfa. Árangur okkar mun ráðast af okkur sjálfum og hvernig við umgöngumst mótbyr og meðbyr.
Viðtalið er fengið af
handbolti.is
.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson