Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Árni í viðtali við heimasíðu Hauka
26. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Ef við spilum okkar leik eru okkur allir vegir færir
Heimasíða Hauka birtir í dag viðtal við Árna Sigtryggsson leikmann Akureyrar en Árni er þeim Hafnfirðingum að góðu kunnur enda lék hann með þeim í tvö tímabil áður en hann hélt í atvinnumennsku til Spánar. Viðtalið við Árna fer hér á eftir.
Hvernig er að vera kominn heim til Íslands á ný og byrjaður að spila með Akureyri ?
„Það er bara mjög fínt. Mér finnst allt vera á uppleið hérna heima. Deildin er sterkari en oft áður og miðað við fyrstu umferðina þá hefur umgjörðin batnað mikið. Það er gott að vera kominn aftur norður. Þetta er mitt uppeldisfélag, þó það sé í breyttri mynd í dag. Það er einnig gaman að taka þátt í því að rífa handboltann á Akureyri upp aftur“
Akureyri byrjaði tímabilið á heimavelli gegn nýliðum FH, þeir voru með yfirtökin í leiknum þangað til um 5 mínútur voru eftir af leiknum og þá fór allt í baklás og FH – ingarnir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu leikinn
„Við fengum nokkur tækifæri til að gera út um þann leik en nýttum þau ekki. Við klúðruðum þessu sjálfir og misstum svo hausinn endanlega síðustu 2 mínúturnar og leyfðum þeim að raða á okkur mörkum. Svona gerist ekki aftur í vetur.“
En hvernig skyldi leikurinn við Hauka á laugardaginn leggjast í Árna, býst hann við að þetta verði eitthvað öðruvísi leikur fyrir hann en aðra leiki og hvernig skyldi stemmingin í herbúðum Akureyrar vera þessa dagana?
„Stemmingin er mjög góð eins og alltaf. Við erum búnir að hreinsa hausinn eftir síðasta leik. Þetta verður vissulega aðeins öðruvísi leikur fyrir mig. Ég ber ennþá taugar til Hauka og kann vel við fólkið í félaginu og strákana í liðinu, en það gleymist á meðan leik stendur.“
Við spurðum Árna næst að því, hverjir möguleikar Akureyrar væru að sigra Hauka og hvað Akureyri þurfti að gera til að sigra „50/50.
Þetta hafa verið hörkuleikir á milli þessara liða undanfarin ár og ég held að þessi leikur verði það líka. Við einbeitum okkur fyrst og fremst að okkur sjálfum fyrir leikinn á laugardaginn. Ef við spilum okkar leik og náum því besta út úr hverjum og einum þá eru okkur allir vegir færir.“
En hvaða lið býst Árni Þór að verði í topp sætunum þegar upp er staðið ?
„Ég held að deildin verði jöfn og spennandi í vetur. Haukar og Valur bera af á pappírunum en spárnar hafa nú ekki staðist undanfarin ár. Það munu vera lið sem koma á óvart og lið sem valda vonbrigðum, eins og alltaf. Ég held að Haukarnir fari langt í vetur og verði í toppbaráttunni á öllum vígstöðum.“
Við spurðum Árna svo að lokum hver framtíðarplön hans væru?
„Klára að mennta mig og halda áfram að bæta mig sem handboltamaður. Á næstu árum stefni ég á að fara aftur í atvinnumennsku,“
sagði Árni Þór Sigtryggsson að lokum við Haukar.is
Sjá viðtalið á heimasíðu Hauka
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson