Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Halldór var drjúgur í hraðaupphlaupunum
5. október 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar
Akureyri komið í 16-liða úrslit Eimskipsbikarsins
Akureyri vann stórsigur á Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar í gær og varð þar með fyrst liða til að tryggja sig áfram í Eimskipsbikar karla. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Reykjanesbæ en þar sem illa gekk að fá sal til að leika í varð að samkomulagi síðastliðinn fimmtudag að leikið yrði hér fyrir norðan. Þar sem Íþróttahöllin var upptekin fór leikurinn fram í KA-Heimilinu.
HKR menn eru að vinna frábært starf við að rífa upp handknattleikinn á Suðurnesjum og hafa einbeitt sér að yngri flokkunum og eru komnir í gang með alla flokka stráka og a.m.k. þrjá flokka kvenna. Meistaraflokkur þeirra tekur þátt í utandeildinni og í spjalli við forsvarsmenn liðsins kom fram að þeir líta á tímabilið í vetur sem undirbúning fyrir þátttöku í deildarkeppni næsta vetur.
Það kom fljótt í ljós að getumunur liðanna var gríðarlegur og einungis spurning um hversu stór sigur Akureyrar yrði. Reyndar má segja að leikurinn hafi þróast upp í hraðaupphlaupsæfingu þar sem eldfljótir horna- og línumenn fengu úr nógu að moða.
Akureyri byrjaði með sitt sterkasta lið en síðan fengu allir úr hópnum að spreyta sig nema hvað Rúnar Sigtryggsson, þjálfari tók því rólega og hélt sig utan vallar allan tímann. Allir útileikmenn sem komu inná skoruðu í leiknum, Halldór Logi Árnason nýtti t.d. tækifærið vel og raðaði inn átta mörkum í síðari hálfleik. Heiðar skoraði einnig 8, Hreinn 7. Andri Snær og Elfar 5 mörk hvor, Árni Þór og Gústaf 4, Hörður og Oddur 3 hvor og Atli Ævar og Jónatan báðir með 2 mörk.
Markvarslan var fín en þess ber að geta að varnarveggurinn tók býsna mörg skot eða hirti boltann af Reyknesingum án þess að þeir kæmu skotum á markið. Hafþór byrjaði en um miðjan fyrri hálfleikinn kom Jesper inná og stóð í markinu allt til loka. Jesper átti prýðilegan leik, varði m.a. tvö vítaköst og tók nokkur opin færi af línunni.
Annars er erfitt að dæma liðið eða einstaklinga út frá þessum leik, til þess var mótstaðan of lítil en gott að liðið keyrði á fullum dampi út allan leikinn og því má segja að liðið hafi fengið ágætis æfingu út úr leiknum. Áhorfendur voru um 120 sem verður að teljast ágætt miðað við allar aðstæður að þessu sinni. Nú er bara að bíða og sjá hverjir verða andstæðingar liðsins í 16-liða úrslitunum.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson