Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Elmar stóð fyrir sínu að vanda
Fannar og Bjarni
17. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
2. flokkur: Sigurgangan heldur áfram
Strákarnir í 2. flokki halda áfram á sömu braut og innbyrtu enn einn sigurinn í dag þegar þeir sigruðu Stjörnuna í miklum barningsleik í Síðuskólanum. Það vantaði reyndar nokkra öfluga pósta í liðið, Heiðar Þór, Atli Ævar og Anton Rúnarsson voru allir fyrir sunnan með meistaraflokki og reyndar einnig Geir Guðmundsson. Oddur Gretarsson var hins vegar með í dag auk þess sem Bjarni Jónasson er kominn til leiks á ný eftir meiðsli.
Akureyri hóf leikinn af miklum krafti og komst í 3-0 en Stjarnan komst fljótlega inn í leikinn og jafnaði í 6-6 og komst raunar yfir í 8-9 en það var raunar í eina skiptið sem Stjarnan var yfir í leiknum. Góður kafli á lokamínútum fyrri hálfleiks skilaði þriggja marka forystu Akureyrar í hálfleik 14-11.
Oddur var atkvæðamikill í fyrri hálfleiknum með góð mörk úr vinstra horninu og fyrir utan, alls sex mörk í hálfleiknum.
Stjarnan byrjaði seinni hálfleikinn betur, minnkaði muninn í 14-13 og eftir það hélst lengst af 1 til 2 marka munur, Akureyri í vil. Maður hafði allan tímann á tilfinningunni að Akureyri hefði örugg tök á leiknum en þeim tókst þó aldrei að hrista Stjörnuna almennilega af sér. Oft á tíðum var óðagot á mönnum, býsna mörg dauðafæri fóru í súginn og sendingar ónákvæmar en leiknum lauk með tveggja marka sigri 26-24 og tvö mikilvæg stig í höfn.
Í seinni hálfleiknum voru Hákon Stefánsson og Fannar Kristmannsson atkvæðamiklir í sókninni auk þess sem Elmar Kristjánsson var góður í markinu.
Gangur leiksins: 3-0, 5-4, 6-6, 8-9, 11-11,
14-11
, 15-13, 18-18, 22-20, 25-22,
26-24
.
Þessi leikur var í raun ekki ósvipaður leik liðanna í desember þegar þau mættust á sama stað í bikarkeppninni en þar fór Akureyri einnig með tveggja marka sigur eftir mikinn barning.
Mörk Akureyrar:
Oddur Gretarsson 9 (4 víti), Hákon Stefánsson 6, Fannar Kristmannsson 5, Jón Þór Sigurðsson 2, Bjarni Jónasson, Halldór Árnason, Hlynur og Steinþór 1 mark hver.
Elmar Kristmannsson stóð í markinu allan tímann og átti fínan leik, sérstaklega í seinni hálfleiknum en hann varði 18 skot í leiknum.
Eftir leikinn er staðan í deildinni sem hér segir:
Nr.
Félag
Leik
U
J
T
Mörk
Nett
Stig
1.
Akureyri
11
11
0
0
379:277
102
22
2.
FH
10
9
0
1
355:259
96
18
3.
ÍR
10
6
0
4
286:278
8
12
4.
HK
11
5
1
5
334:319
15
11
5.
Afturelding
11
5
1
5
298:324
-26
11
6.
Valur
9
4
2
3
276:261
15
10
7.
Haukar
11
3
4
4
303:295
8
10
8.
Fram
11
4
0
7
311:331
-20
8
9.
Víkingur
10
3
2
5
280:265
15
8
10.
Selfoss
8
3
1
4
248:239
9
7
11.
Stjarnan
9
2
1
6
245:260
-15
5
12.
Fjölnir
11
0
0
11
213:420
-207
0
Á morgun fljúga strákarnir suður og leika við Fram í bikarkeppninni. Þar koma væntanlega meistaraflokksstrákarnir aftur til liðs við hópinn.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson