Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Andri Snær var markahæstur í dag
30. janúar 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar
Slæm útreið gegn Val í gærkvöldi
Akureyri fór enga frægðarför til Valsmanna í gærkvöldi. Fyrstu ellefu mínúturnar var leikurinn jafn og skemmtilegur, jafnt á öllum tölum og Akureyri í fínum málum. Í kjölfarið ná Valsmenn fjögurra marka forystu 9-5 og þar með virtist Akureyrarliðið missa hausinn. Valsmenn réðu lögum og lofum á vellinum og fóru með níu marka forskot 17-9 til leikhlés og svo virtist sem úrslitin væru ráðin.
Jónatan skorar
Valsmenn héldu áfram í upphafi seinni hálfleiks og munurinn jókst hröðum skrefum allt upp í 30-15 en á þessum tíma endaði hver sóknin á fætur annarri á lélegum skotum sem Ólafur Gíslason markvörður Vals varði auðveldlega og skilaði boltanum trekk í trekk fram í hraðaupphlaup sem gáfu mörk. Það sem eftir lifði leiksins náði Akureyri að krafla lítillega í bakkann og lokatölur urðu 32-21 fyrir Val eftir að Hafþór markvörður skoraði síðasta mark leiksins, þvert yfir allan völlinn.
Hörður Fannar þurfti að yfirgefa völlinn meiddur fljótlega í fyrri hálfleik og munaði mikið um fjarveru hans í vörninni og ekki síður í sókninni. Sigur Valsmanna var sanngjarn á meðan leikur Akureyrar var í heildina séð dapur. Vörnin sem hafði verið aðalsmerki liðsins var máttlaus og að sama skapi var engin grimmd í sóknarleiknum. Það var helst Andri Snær sem lét að sér kveða og hefði hann að ósekju mátt vera meira inná í seinni hálfleik. Aragrúi dauðafæra úr hraðaupphlaupum, línu og hornum fór í vaskinn þar sem Ólafur Gíslason fór á kostum í Valsmarkinu með alls 27 skot varin.
Hafþór byrjaði í markinu og tók nokkra bolta í byrjun en síðan lítið meir þannig að Hörður Flóki kom í markið og tók nokkra fína bolta í fyrri hálfleik. Flóki datt síðan niður í seinni hálfleik og átti Hafþór ágæta innkomu í seinni hálfleiknum.
Dómarar leiksins áttu mjög dapran dag og var mikið ósamræmi í dómum þeirra þar sem Valsmenn fengu vítaköst á færibandi á meðan sleppt var ítrekað að dæma víti á Valsara.
Mörk Akureyrar: Andri Snær 5, Árni 3, Jonni 3, Oddur 3, Goran 2 Hreinn 2, Hafþór 1, Atli 1, Gústaf 1.
Sjá gang leiksins
Nú verður Akureyri að gyrða sig í brók fyrir næsta leik sem er heimaleikur gegn Fram og verður sá leikur fimmtudaginn 5. febrúar klukkan 19:30.
Að loknum leikjum gærdagsins er staðan í deildinni sem hér segir:
Nr.
Félag
Leikir
U
J
T
Mörk
Hlutfall
Stig
-
1.
Haukar
13
9
0
4
374 : 330
44
18
:
8
2.
Valur
13
7
3
3
362 : 309
53
17
:
9
3.
FH
13
7
2
4
395 : 379
16
16
:
10
4.
Fram
13
7
2
4
362 : 361
1
16
:
10
5.
HK
13
5
3
5
344 : 354
-10
13
:
13
6.
Akureyri
13
6
0
7
334 : 358
-24
12
:
14
7.
Stjarnan
13
2
3
8
324 : 357
-33
7
:
19
8.
Víkingur
13
2
1
10
336 : 383
-47
5
:
21
Hér er hægt að
skoða nokkrar myndir
frá leiknum sem ljósmyndari Handbolti.is tók.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson