Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jónatan fór fyrir sínum mönnum í dag sem sannur fyrirliði

5. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jafntefli gegn Fram og úrvalsdeildarsætið tryggt

Akureyri Handboltafélag tryggði sér áframhaldandi veru í N1-deild karla í handbolta næsta vetur þegar liðið gerði jafntefli við Fram á heimavelli í dag. Jafnteflið eitt og sér hefði ekki dugað Akureyri til að halda sætinu í deildinni en þar sem að Stjarnan tapaði á sama tíma fyrir Haukum 27-31 skiptu úrslitin í leik Akureyrar ekki máli.

Þessi umfjöllun um leikinn í dag er fengin að láni frá fréttaritara Vikudags, Jóni Stefáni Jónssyni.

Leikur Akureyrar og Fram var lengst af fremur bragdaufur og var mikil deyfð yfir bæði leikmönnum Akureyrar sem og áhorfendum lengst af leik. Reyndar átti það einnig við um gestina sem þó héldu frumkvæðinu nær allan leikinn og leiddu í hálfleik 15-13.

Þegar um 8 mínútur voru til leiksloka virtist stefna í öruggan sigur Fram sem þá hafði fimm marka forystu 28-23 og Akureyringar algjörlega heillum horfnir. En svo fór þó ekki því á þessum tímapunkti small framliggjandi vörn Akureyringa algjörlega saman í bland við að Hafþór Einarsson, sem kom í markið í stað Harðar Flóka Ólafssonar skömmu áður, fór að verja eins og berserkur. Akureyringar minnkuðu muninn í eitt mark þegar um þrjár mínútur voru eftir 27-28 og brenndu af þremur tækifærum til að jafna á næstu mínútum áður en Andri Snær Stefánsson jafnaði leikinn 28-28 þegar 15 sekúndur voru til leiksloka.

Frammarar geystust í sókn ef sterk vörn Akureyrar hélt og jafntefli varð niðurstaðan. Úr því sem komið var má segja að lokahnykkurinn á tímabilinu hafi verið nokkuð jákvæður hjá Akureyri, því liðið náði að tryggja sér stig eftir að hafa verið komnir í því sem næst vonlausa stöðu.

Bestu menn Akureyrar í leiknum voru þeir Jónatan Magnússon, Oddur Gretarsson ásamt því að Andri Snær Stefánsson og Hreinn Hauksson áttu góða spretti.

Mörk Akureyrar skoruðu: Jónatan 6, Árni 6 (3 úr vítum), Andri Snær og Oddur 4 hvor, Hreinn 3, Björn Óli og Hörður 2 mörk hvor og Heiðar Þór 1 mark.

Leikurinn var í beinni lýsingu hér á síðunni og hægt að fylgjast þar með gangi leiksins. Sjá beinu lýsinguna.

Lokastaðan í N1-deildinni varð því:
Nr. FélagLeikir  U  J  TMörkHlutfallStig-
1.  Haukar211614599 : 5168333:9
2.  Valur211335585 : 5097629:13
3.  HK211056564 : 560425:17
4.  Fram211047586 : 580624:18
5.  FH218211602 : 613-1118:24
6.  Akureyri217311538 : 573-3517:25
7.  Stjarnan216312535 : 572-3715:27
8.  Víkingur213117527 : 613-867:35
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson