Fréttir  -  Leikir tímabilsins  -  Leikmenn  -  Stjórn  -  Saga og tölfræði  -  Höllin  -  Lagið  -  Myndir  -  Myndbönd  -  Tenglar
  - Úrvalsdeild karla - Senda skilaboð - Vefur KA - Vefur Þór - Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri 28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri 22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan

Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U 35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR 34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan




    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Guðlaugur kominn í Akureyrarbúninginn

26. apríl 2009 - Akureyri handboltafélag skrifar

Guðlaugur Arnarsson til liðs við Akureyri Handboltafélag

Í gærkvöldi undirritaði Guðlaugur Arnarsson samning um að leika með Akureyri Handboltafélagi á næstu leiktíð. Guðlaugur, sem stendur á þrítugu, leikur sem stendur með FC. Köbenhavn en á síðasta tímabili lék hann með HK Malmö í Svíþjóð. Áður en Guðlaugur hélt utan lék hann síðast með Fylki en þar áður með Fram og Völsungi. Þá hefur Guðlaugur leikið 3 leiki með landsliði Íslands.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það hversu mikill hvalreki það er fyrir Akureyri Handboltafélag að fá Guðlaug í sínar raðir en Gulli er línumaður og feikiöflugur varnarmaður.

Guðlaugur undirritaði samninginn á heimili sínu í Kaupmannahöfn, íklæddur búningi Akureyri Handboltafélag og eins og meðfylgjandi mynd frá athöfninni ber með sér tekur hann sig býsna vel í honum. Við bjóðum Guðlaug hjartanlega velkominn í klúbbinn.



Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook
Umsjón og hönnun: Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson