Árni er óðum að komast í sitt gamla form
| | 4. júní 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarÁrni Þór Sigtryggsson í æfingahópi landsliðsinsÍ dag tilkynnti Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari æfingahóp sinn fyrir næstu verkefni karlalandsliðs Íslands. Okkar maður, Árni Þór Sigtryggsson var valinn í hópinn og er það ánægjulegt og til marks um að Árni er að ná sínum fyrri styrk eftir erfiða axlaraðgerð síðasta vetur. Á næstu dögum leikur landsliðið fjóra leiki í undankeppni Evrópumótsins sem hér segir.
Miðvikudaginn 10. júní kl. 18:30 Belgía - Ísland Sunnudaginn 14. júní kl. 16:00 Ísland – Noregur (Laugardalshöll) Miðvikudaginn 17. júní kl. 17:00 Ísland – Makedónía (Laugardalshöll) Sunnudaginn 21. júní kl. 15:00 Eistland – Ísland
Fyrir þessa leiki eru Ísland og Noregur efst í riðlinum með 7 stig eftir fjóra leiki.
Æfingahópurinn er þannig skipaður: Markverðir: Björgvin Páll Gústavsson, Bittenfeld Hreiðar Levý Guðmundsson, Sävehof
Aðrir leikmenn: Alexander Petersson, Flensburg Andri Stefan, Haukum Aron Pálmarsson, FH Árni Þór Sigtryggsson, Akureyri Fannar Friðgeirsson, Val Freyr Brynjarsson, Haukum Guðjón Valur Siguðrsson, Rhein-Neckar Löwen Heiðmar Felixsson, Hannover-Burgdorf Ingimundur Ingimundarson, Minden Kári Kristján Kristjánsson, Haukum Ragnar Óskarsson, Dunkerque Róbert Gunnarsson, Gummersbach Rúnar Kárason, Fram Sigurbergur Sveinsson, Haukum Snorri Steinn Guðjónsson, GOG Stefán Baldvin Stefánsson, Fram Sverre Jakobsson, HK Vignir Svavarsson, Lemgo Þórir Ólafsson, Lübbecke |