Það er stutt í brosið hjá drengnum enda í öruggum höndum
| | 16. júlí 2009 - Akureyri handboltafélag skrifarKomin mynd af SigurólasyniEins og við greindum frá í gær fjölgaði hjá Siguróla og Ingu á föstudaginn. Siguróli brá skjótt við áskorun okkar um mynd af afkomandanum og sendi þessa fínu mynd af þeim feðgum sem hér birtist. Nú geta lesendur rýnt í svipinn á þeim og spáð í hvort pilturinn hafi erft augun, nefið, ennið eða hvað frá föðurnum, það er greinilega fullsnemmt að spá í hárið á þessu stigi. Eins og vant er munu menn væntanlega sjá mismunandi líkindi, það sem sumir sjá úr föðurættinni sjá aðrir úr móðurættinni og svo öfugt. Stoltur faðir með frumburðinn Þetta er allavega hinn myndarlegasti piltur, albúinn að takast á við lífið með góðri hjálp foreldranna og annarra aðstandenda. Enn og aftur til hamingju Siguróli og Inga. |