Fréttir
-
Leikir tímabilsins
-
Leikmenn
-
Stjórn
-
Saga og tölfræði
-
Höllin
-
Lagið
-
Myndir
-
Myndbönd
-
Tenglar
Veldu leiktímabil
2016-17
2015-16
2014-15
2013-14
2012-13
2011-12
2010-11
2009-10
2008-09
2007-08
2006-07
-
Úrvalsdeild karla
-
Senda skilaboð
-
Vefur KA
-
Vefur Þór
-
Fréttaleit
Meistarafl. karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan-Akureyri
28-23
Þri. 4. apr. 2017
Olís deild karla
ÍBV-Akureyri
22-22
Mið. 29. mar. 2017
Olís deild karla
deildin staðan
Ungmennalið karla
Næstu leikir
Nýjustu úrslit
Stjarnan U-Akureyri U
35-30
Fös. 7. apr. 2017
1. deild karla
Akureyri U-KR
34-30
Fös. 31. mar. 2017
1. deild karla
deildin staðan
Fréttir
Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar!
Hvernig færum við að án þjónustu SportTV.is?
4. febrúar 2010 - Akureyri handboltafélag skrifar
Leikur í dag: FH – Akureyri sýndur í KA heimilinu og í Hamri
Loksins, loksins byrjar karlahandboltinn að fljúga hér innanlands í dag þegar þrír leikir fara fram í N1 deild karla. Við höfum að sjálfsögðu mestan áhuga á leik FH og Akureyrar sem hefst klukkan 18:30 í Kaplakrika (Hafnarfirði). Aðrir leikir kvöldsins eru: Grótta – Valur og Haukar – Fram.
SportTV.is ætlar að sýna leik okkar manna beint á netinu og hvetjum við alla stuðningsmenn til að fylgjast með enda forvitnilegt að sjá hvernig liðin koma til leiks eftir óralangt hlé. Vegna anna á Greifanum verður leikurinn ekki sýndur þar að þessu sinni en verður þess í stað sýndur á stóru tjaldi bæði í KA Heimilinu og Hamri, félagsheimili Þórs. Í KA heimilinu verður hægt að kaupa pizzu og gosglas á 300 krónur.
Í leiðinni er rétt að minna á að það er stutt í næsta leik þar á eftir en á mánudagskvöldið kemur harðsnúið lið Gróttumanna norður og þá verður fjör í Íþróttahöllinni.
En verkefni dagsins er sem sé leikurinn gegn FH og beinum við stuðningsmönnum Akureyrar á höfuðborgarsvæðinu á að fjölmenna í Kaplakrikann og styðja sína menn.
Smelltu hér til að
fylgjast með útsendingu SportTV.is á netinu.
Fletta milli frétta
Til baka
Senda á Facebook
Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson