Við stöndum við bakið á okkar mönnum!
| | 26. mars 2010 - Akureyri handboltafélag skrifarMinnum á leik 2. flokks í dag – deildarmeistaratitill í boðiStrákarnir í 2. flokki mæta FH í dag og fer leikurinn fram í Íþróttahúsi Síðuskóla og hefst klukkan 19:30. Með sigri verða strákarnir efstir í deildinni og þar með Deildarmeistarar þannig að ekkert nema sigur kemur til greina.
Önnur úrslit, jafntefli eða tap þýða að liðið endar í 3. sæti deildarinnar en að sjálfsögðu er það ekki valkostur fyrirfram.
Við hvetjum alla til að koma í Síðuskóla í kvöld, þetta verður ekki átakalaust en því fleiri sem leggjast á árarnar, því betra.
|